efnahagshrun og endurreisn, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Hér sitjum við í þingsal og hlustum á afar merkilega ræðu á eins árs afmæli hrunsins. Hér var fyrrverandi hæstv. viðskiptaráðherra að tala. Samfylkingin hefur alltaf talað niður krónuna og Samfylkingin er enn þá að tala niður krónuna. Samfylkingin hefur átt aðild að þremur síðustu ríkisstjórnum. Samfylkingin hefur setið í ríkisstjórn síðan á vordögum 2007. Hér var haldin ræða af manni sem virðist ekki hafa komið að neinu því sem olli hruninu. Ég vil minna þingmanninn á að hann var viðskiptaráðherra þegar hrunið mikla varð. Raunverulega er ég afar undrandi á því að hv. þingmaður skuli tala undir þessum lið þar sem ábyrgð hans er mikil.
Mig langar því til að beina til hans sömu spurningu og ég beindi til hæstv. viðskiptaráðherra áðan þar sem hv. þingmaður hefur líklega komið eitthvað að þeim ákvörðunum á sínum tíma að tryggja allar innstæður og þegar sú ákvörðun var tekin að dæla fjármagni inn í peningamarkaðssjóðina. Nú hefur komið í ljós að verðmætið var stórlega ofmetið og að öllum líkindum munu á milli 80 og 100 milljarðar kr. lenda á íslenska ríkinu vegna þessa. Telur hv. þingmaður að um skaðabótaábyrgð geti verið að ræða hjá þeim sem þegar hafa fengið greitt út úr sjóðunum? Telur hann að þessir aðilar þurfi jafnvel að endurgreiða þetta fjármagn og finnst honum eðlilegt að farið hafi verið í þessar aðgerðir þar sem 75% þeirra sem áttu innstæður í þessum sjóðum voru fagfjárfestar og aðilar sem áttu eignarhaldsfélög?