138. löggjafarþing — 3. fundur,  6. okt. 2009.

efnahagshrun og endurreisn, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[17:11]
Horfa

Anna Pála Sverrisdóttir (Sf):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að sjá svo marga í salnum á þessum degi.

Íslenska efnahagshrunið árið 2008 markaði endalok blekkingar. Undrið byggði á engu, peningarnir sem virtust verða til úr engu voru einmitt ekki neitt. Fólki var í of mörg ár talin trú um að það væru almannahagsmunir að hver og einn eltist við sérhagsmuni og að frumskógarlögmálið fengi að ráða. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa upp úr stjórnmálaályktun landsþings ungra jafnaðarmanna 2009 sem lauk um helgina:

„Bankarnir voru einkavæddir í hendur útvaldra og skattkerfinu var skipulega breytt til að hygla þeim ríku á kostnað þeirra sem minnst hafa milli handanna.“

Frumskógarlögmálið birtist líka þannig að sá sem hafði afl misbeitti því svo gróflega að sjálfsagt þótti að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skipuðu dómara pólitískt.

Kannski má segja að við berum öll einhverja ábyrgð á hruninu vegna meðvitundarleysis og meðvirkni. Líklega má segja að mistök míns flokks, Samfylkingarinnar, felist í því að í ríkisstjórn 2007–2008 taldi Samfylkingin sig hafa lengri tíma til að snúa óheillaþróuninni við en raunin varð. Eftir stendur að orsökin er fyrst og fremst sú frjálshyggjustefna sem var fylgt, oftrúin á hina huldu hönd markaðarins.

Hver nennir þó að festa sig í fortíðinni?

Endalok blekkingarinnar hristu aldeilis upp í minni kynslóð. Allt í einu virtist okkur ekki lengur allir vegir færir án fyrirhafnar. Óöryggi var okkur nýr veruleiki. Þann 6. október árið 2008 dvaldi ég sjálf sem skiptinemi í Kaupmannahöfn. Allt í einu gátum við ekki lengur notað greiðslukortin okkar erlendis. Sjálf var ég heppin og fékk til afnota VISA-kort þingmanns danskra sósíaldemókrata og hafi hún þökk fyrir. Það þurfti að skrifa bréf til Seðlabankans persónulega og útskýra sínar aðstæður til að fá að millifæra fyrir leigunni. Heima misstu vinir okkar vinnuna af því að atvinnuleysið kemur verst niður á ungu fólki.

Frú forseti. Við verðum nú að vinna út frá okkar nýja veruleika. Við verðum að halda áfram og hjálpast að við að byggja upp meira spennandi samfélag en það sem áður var. Við héldum kosningar sem voru lýðræðinu nauðsyn. Nú þurfum við að búa til samfélag sem byggir á að vinna fyrir sínu, auknum völdum kvenna og útrýmingu kynbundins ofbeldis, samstöðu og jöfnuði, fjölbreyttum atvinnuvegum, menntun og nýsköpun, minna miðstýrðum atvinnuvegum og síðast en ekki síst á sjálfbærni, umhverfisvernd og því að byggja til framtíðar. Ég vil samfélag sem er þess virði fyrir ungt fólk að taka þátt í að byggja upp. Nota bene ekki samfélag þar sem maður bíður bara eftir því að kirkjan eða Kattholt dúkki upp á listanum yfir fólk sem hefur orðið uppvíst að gjaldeyrissvindli. Þarna ber allt samfélagið ábyrgð, ekki bara stjórnmálamenn.

Sjálf vil ég losna við gjaldeyrishöftin. Ég vil líka losna við þá innilokunarkennd sem vaknar þegar fólk sem lifir í fortíðinni vill loka landinu okkar. Það er ekki landið sem ég vil búa í. Ég vil Ísland sem er hluti af alþjóðasamfélaginu, Ísland sem tekur sér sæti við það fundarborð sem Evrópusambandið er. Ég vil evruna sem gjaldmiðil. Ég vil að þeir séu dregnir til ábyrgðar á hruninu sem hana eiga. Það er réttlætismál. Þeir stjórnmálaflokkar sem mesta ábyrgð báru hafa nú þegar verið dregnir til ábyrgðar í kosningum. Fleiri þurfa að gera það. Ég vil líka að við klárum Icesave-deiluna, þennan lausaleikskróga Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem ég virðist þurfa að ganga í föðurstað á meðan hið líffræðilega foreldri daðrar við kjósendur af fullkomnu ábyrgðarleysi. Lausn þessarar ömurlegu deilu, frú forseti, er forsenda þess að geta haldið áfram á leið til framtíðar sem hin langþráða félagshyggjustjórn Samfylkingar og Vinstri grænna leggur nú grunninn að, framtíðar sem byggir á almannahagsmunum en ekki sérhagsmunum.