staða Icesave-samningsins.
Hæstv. forseti. Ég ætla að beina fyrirspurn minni til hæstv. utanríkisráðherra, enda snertir málið samskipti við önnur ríki og einnig er það svo að hvorki hæstv. forsætisráðherra né hæstv. fjármálaráðherra eru hér til svara í dag. Það er alveg ljóst að í landinu ríkir stjórnarkreppa og hæstv. utanríkisráðherra hefur sjálfur sagt í viðtölum, bæði við innlenda fjölmiðla og reyndar við erlenda líka að ágreiningurinn í ríkisstjórninni hjálpi ekki til. Hann hefur í rauninni í nýlegum viðtölum við erlenda fjölmiðla gefið með skýrum hætti til kynna að stjórnarkreppa geti blasað við.
Við þekkjum auðvitað atburði síðustu daga, bæði varðandi ágreininginn um Icesave en eins varðandi það sem upp hefur komið varðandi fjárlagafrumvarpið þegar einstakir fagráðherrar hafa svarið af sér þætti í fjárlagafrumvarpinu sem lúta að ráðuneytum þeirra. Ég ætla ekki að fara yfir það, en upplausnin er alla vega augljós okkur öllum sem fylgjumst með stjórnmálum. Hún hefur borist út fyrir landsteinana og aðrir fylgjast með þannig að hætt er við að staða ríkisstjórnar Íslands hafi veikst á erlendum vettvangi.
Ríkisstjórnin á í ákveðnum viðræðum við Breta og Hollendinga og það er ekki fráleitt að segja að sú upplausn sem hér ríkir hafi haft skaðleg áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar í þeim viðræðum. En fyrirspurn mín til hæstv. viðskiptaráðherra lýtur að því hver áform ríkisstjórnarinnar í sambandi við Icesave-málið eru, hvort til standi, eins og okkur hefur skilist, að leggja fram frumvarp á þingi til að breyta þeim fyrirvörum sem Alþingi setti varðandi Icesave-samningana og hvort í slíku frumvarpi (Forseti hringir.) verði fallist á þau skilyrði eða þær kröfur sem fram hafa komið af hálfu Hollendinga og Breta.