umgjörð Icesave-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég vil bara biðja stjórnarliða afsökunar á því, mér sýnist ég hafa aukið á stjórnarkreppuna og ekki var þar á bætandi en það kom alveg skýrt fram að hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra heldur sig við sína túlkun og er ósammála því sem fram kom hjá hæstv. forsætisráðherra. Svo bætti hann um betur og sagði að við þyrftum að huga að því að Bretar og Hollendingar greiddu helminginn af reikningnum. Þeir greiða það sem þeir tóku sérstaklega ákvörðun um sjálfir umfram lágmarkstilskipun Evrópusambandsins. En áfram heldur hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra að túlka og vernda málstað þeirra sem við erum að takast á við. Þetta er nákvæmlega það sem hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra talaði um í sumar, 3. júní, og ég var að vonast til þess að hann, ásamt öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni, væri búinn að sjá ljósið en svo er því miður ekki. Það er kaldhæðnislegt að sjálfur ráðherra í ríkisstjórn Íslands skuli ekki halda á lofti (Forseti hringir.) þessum augljósu sjónarmiðum. En því ber að halda til haga að hæstv. forsætisráðherra er þó kominn á rétta braut (Forseti hringir.) hvað þetta varðar.