138. löggjafarþing — 4. fundur,  7. okt. 2009.

Icesave og EES-samningurinn.

[13:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Ég tel fráleitt að EES-samningurinn sé í uppnámi ef við göngum ekki frá þeim skuldbindingum sem við höfum axlað gagnvart Hollendingum og Bretum. Ég skildi spurningu hv. þingmanns þannig. Ég hef skilið þá fræðimenn sem ég hef hlýtt á í fjölmiðlum núna í morgun með þeim hætti að þeir telji að neyðarlögin sem sett voru í fyrra geri það að verkum að það séu ákveðnar hömlur á þátttöku okkar í innri markaðnum. Ég var því ósammála. Ástæðan er sú að við erum núna með ákveðnar gjaldeyrishömlur sem eru beinlínis hluti af þeim samningi sem við gerðum um endurreisn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þær þjóðir sem um ræðir, þ.e. Evrópuþjóðirnar, eru allar meira og minna aðilar að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þær eru óbeint aðilar að þeim samningi sem gerir ráð fyrir því að við getum ekki tímabundið tekið þátt í innri markaðnum með þessum hætti og staðið að frjálsum fjármagnsflutningum. Það tilkynntum við hins vegar á sínum tíma í samræmi við þann feril sem er fyrirskrifaður í þeim reglum sem tengjast EES. Við litum svo á að þar með væru þessar þjóðir upplýstar um það og því hefur enginn mótmælt á neinn hátt.

Þetta vildi ég segja við hv. þingmann þannig að ég tel alls ekki, hafi ég skilið spurningu hv. þingmanns rétt, að lyktir Icesave-málsins leiði sjálfkrafa til þess að EES-samningurinn sé í uppnámi.