138. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[15:08]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir þetta ágæta svar sem var að mestu leyti tæmandi. Ég saknaði þó svars er varðaði stóriðju og aðra þá þætti atvinnulífsins sem helst hafa skilað tekjum inn í samfélagið í formi gjaldeyristekna. Mig langar að endurtaka spurninguna er varðar hugmyndir um einhvers konar stóriðjuskatt. Ég skal viðurkenna það í þessu púlti að ég er ekki talsmaður þess að ofurskattleggja þá grein en ég tel hins vegar að eðlilegt sé að auka skatta á þá grein að einhverju leyti. Menn geta talað um aura í þeim efnum í staðinn fyrir krónur, en ég ítreka að ég vil fá sýn Framsóknarflokksins á e.t.v. aukna skattheimtu á atvinnulífið vegna þess að ég tel að ef við eigum að fara á annað borð út í einhverja skattheimtu, sem ég tel að við þurfum, getum við ekki undanskilið fyrirtækin. Aukin skattheimta má ekki einvörðungu lenda á heimilum landsins heldur verður hún að dreifast á jafnt heimili sem fyrirtæki.

Það væri gott að fá sýn Framsóknarflokksins á aukna skattheimtu, hvað meðalstór fyrirtæki og smá fyrirtæki varðar, upp í pontu.