138. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[15:34]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og fagna sérstaklega því sem hann sagði um að flatur niðurskurður væri stjórnsýsluleti. Í framhaldi af því langar mig að spyrja hann, af því að hann telur að nóg fitulag sé til að skera niður, hvort það sé rétt að farið að menn byrji á að skera niður t.d. 70–80 millj. kr. hjá SÁÁ á Vogi og gera í raun og veru þá starfsstöð óvirka, kippa stoðunum undan henni þannig hún geti ekki sinnt sínum verkefnum. Með því er verið að færa vandamálin til vegna þess að þeir sjúklingar sem ekki komast þar inn fara þá inn á spítala eða í fangelsi. Við þekkjum hvernig það er.

Eins langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að hann þekkir vel til fjölmiðla, hvort honum finnist vera eðlilegt samræmi á milli þess að hjá Ríkisútvarpinu eru 300 starfsmenn í vinnu og í lögreglunni í Reykjavík eru einnig 300?

Ég er ósammála hv. þingmanni um að þetta fjárlagafrumvarp sé raunhæft. Hann segir að ekki sé hægt að koma hjólum atvinnulífsins í gang, það verði að fara í niðurskurð og skattahækkanir. Þá langar mig að spyrja hann út í það sem kom fram í ræðu minni áðan, þ.e. tillögu um að auka veiðiheimildir þannig að það geti skapað hæglega 27 milljarða inn í þjóðarbúið. Einnig mættu menn nýta t.d. makrílveiðarnar betur til manneldis. Menn verða þar af 4–6 millj. til viðbótar. Við höfum fullt af tækifærum sem við getum byrjað á strax.

Mig langar líka að spyrja hv. þingmann um atvinnuuppbygginguna hjá stjórnvöldum, hvort hann sé sáttur við þau vinnubrögð sem ríkisstjórnin hefur viðhaft. Þ.e. ef einhver hefur viljað byggja upp atvinnu og koma inn með fjárfestingu hefur ríkisstjórnin aldrei gert neitt annað en þvælast fyrir, reynt að berja það af sér og notað kraftana í það.