138. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[16:08]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek að mörgu leyti undir með hv. þm. Ólöfu Nordal að vel má líta á hugmyndir sjálfstæðismanna hvað varðar lífeyrissparnaðarinnskatt, ef svo má að orði komast, og hafa hann í huga í öllu því sem þarf að gera vegna þess að ég tek ofan fyrir þeim stjórnmálaflokkum sem koma með hugmyndir. Þetta er mjög áhugaverð hugmynd sem ég tel að þurfi að skoða og ég vek sérstaka athygli á því hverjir hafa helst talað gegn henni, eins og hv. þingmaður kom reyndar inn á í ræðu sinni.

Ég endurtek spurninguna engu að síður sem varðar grundvallaratriði hugsanlegrar aukinnar skattheimtu: Eiga þeir að greiða meira sem eiga og eignast meira en þeir hinir sem bera skarðan hlut frá borði?