138. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[16:09]
Horfa

Ólöf Nordal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að skattkerfið eigi að vera einfalt. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að það borgi sig að hafa það eins einfalt og hægt er, þannig skapi það sem mestar tekjur. Ég er líka eindregið þeirrar skoðunar að ýta eigi undir atvinnuþátttöku fólks. Ekki eigi að draga þrótt úr fólki sem með vinnu sinni skapar meiri tekjur. Ég held líka að þannig aukist skatttekjurnar mun meira en ella. Þetta er grundvallarskoðun mín og hún hefur ekki breyst og mun ekki breytast þrátt fyrir þessa vinstri stjórn.