fjárlög 2010.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hugleiðingar og sé að við deilum skoðunum að mörgu leyti. Ég geri t.d. frekar ráð fyrir, þar sem við erum bæði gamlir sveitarstjórnarmenn, að við deilum því að okkur finnst Skipulagsstofnun ákveðið vandamál í kerfinu en það er annað mál.
Ég get ekki annað en deilt því með umhverfisráðherra að vinnubrögð við umhverfismat eiga að vera fagleg en ég deili því hins vegar með hv. þingmanni að tímasetningin var óheppileg. Það hefði verið betra að búið hefði verið að skoða þetta fyrir fram, línurnar áttu að sjálfsögðu að vera með þarna inni. Aftur á móti verð ég að viðurkenna, ef það er tilfellið sem hv. þingmaður segir að allt sé þarna í uppnámi, að þá finnst mér kannski ekki hafa verið byggt á traustum grunni vegna þess að vonandi er aðeins um frestun að ræða í ákveðinn tíma. En þó að framkvæmdir séu hafnar að einhverju leyti þá vill svo til að ég þekki ágætlega úr mínu nærumhverfi hversu langan tíma það tekur að byggja álver og koma því í gagnið. Ég vona því svo sannarlega að þetta verkefni sé ekki í því uppnámi sem mér finnst kannski svolítið vera hent í loftið í æsifregnastíl, heldur reikna ég með að þarna sé ákveðin þolinmæði hjá þeim aðilum sem hafa hafið verk.
En eins og ég segi við getum ávallt bætt okkur og ég deili þeirri skoðun að það hefði verið gott að þarna hefði allt málið farið í umhverfismat til að byrja með.