138. löggjafarþing — 5. fundur,  8. okt. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[20:31]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf):

Frú forseti. Hér eru til umræðu hrunafjárlögin, fjárlögin 2010. Ég vil í upphafi máls míns taka ofan fyrir nálgun fjármálaráðherra og hans fólks við vinnu þessara fjárlaga. Ég held að gengið sé markvisst til verks því að ljóst er að ef við þrengjum ekki beltið nú ýtum við vandamálinu á undan okkur og ég held að það sé ekki góð lending.

Hart er gengið fram í niðurskurði og greinilegt að opinberi geirinn verður að taka á sig verulega tekjuskerðingu, ef svo mætti að orði komast. Ég vil nota tækifærið og skora á aðila innan opinbera geirans að taka vel í þær hugmyndir sem við leggjum fram vegna þess að einkageirinn hefur tekið á sig verulega launalækkun á undanförnum tólf mánuðum frá því að hrunið átti sér stað og jafnvel fyrr og hægt er að mæta niðurskurðarhugmyndum með launalækkun frekar en kannski að hóta uppsögnum starfsmanna.

Heilt yfir held ég að mikilvægt sé fyrir okkur að hafa í huga að vandi okkar er í raun vandi ríkrar þjóðar í samanburði við aðrar þjóðir í kringum okkur eða jafnvel stöðu Íslands áður. Við erum kannski að horfa fram á að landsframleiðsla sé að fara til ársins 2002, kaupmáttur er að nálgast svipaða tölu og í rauninni er kaupmátturinn í dag miklu meiri en hann hefur verið svo lengi sem elstu menn muna og jafnvel lengur, nema ef til vill að undanskildum þremur til fjórum árum sem voru bara bóla eins og við vitum.

Mér finnst mikilvægt að við þingmenn og aðrir nálgumst þessa umræðu með jákvæðum hætti og látum ekki bölmóðinn taka af okkur dómgreindina. Kannski getum við nálgast viðfangsefnið þannig að við séum ekki að horfa á niðurskurð heldur skulum við frekar fagna því að við getum veitt fjármuni í ákveðin verkefni. Gaman væri ef við gætum fagnað því að við séum að setja 20 milljarða í háskólana, 20 milljarða í framhaldsskóla, að við getum sett 10 milljarða í Lánasjóð íslenskra námsmanna. Við getum varið 500 milljónum til skógræktar, við getum sett 1,5 milljarða í að reka þjóðkirkju og 5 milljarða alls í kirkjumál. Við getum sett 20 milljarða kr. inn í Atvinnuleysistryggingasjóð og við getum veitt 10 milljarða í fæðingarorlof. Við getum styrkt barnafjölskyldur í landinu um 9 milljarða. Ef við mundum nálgast málið þannig væri þetta auðveldara verk.

Hins vegar má ekki gleyma því að fjárlögin í ár eru í raun birtingarmynd slæmrar stjórnar á efnahagsmálum þjóðarinnar undanfarin ár og alveg sama hvert litið er. Er það aðhald þegar við lækkuðum tekju- og neysluskatta árin 2003 og 2007? Eða þegar við settum peninga inn í íbúðalánakerfið og fórum í framkvæmdir? Eða þegar við fjárfestum í orku og álverum fyrir 10–12% af landsframleiðslu á árunum 2005 og 2006 þegar þær framkvæmdir voru að mestu leyti fyrirséðar og við misstum af tækifæri til verulegra mótvægisaðgerða af hálfu hins opinbera? en þá var haldið áfram að lækka skatta, hækka hámarkslán, leyfileg veðhlutföll Íbúðalánasjóðs og húsnæðisbólan mögnuð upp.

Við höfum á síðustu árum lifað um efni fram og við þurfum að laga okkur að því. Árið 2009 er ríkissjóður rekinn með rúmlega 400 millj. kr. halla á dag og slíkur hallarekstur í ár og næstu ár kostar sitt. Við þurfum að koma gjaldþrota Seðlabanka til hjálpar og þannig fer ríkið að greiða u.þ.b. 100 milljarða kr. í vexti á ári. Við því eigum við að bregðast. Ef við förum ekki í sársaukaaðlögun á veruleikanum í dag og skerum niður útgjöld umtalsvert í þessum fjárlögum og næstu og auka tekjur okkar er ljóst að við veltum kostnaðinum af skuldsetningunni yfir á næstu kynslóð og fyrir slíkri pólitík vil ég ekki standa. Þess vegna fagna ég framlögðu frumvarpi.

Ég held að við ættum líka að skoða vel hvernig tekjuskatts- og fjármagnskerfi okkar er uppbyggt. Almennar tekjur eru skattlagðar með 37,2% skatti þegar fjármagnstekjur eru einungis með um 10% skatt. Við höfum því flutt skattbyrðina frá þeim efnameiri til venjulegra launamanna. Þeir allra ríkustu í samfélaginu greiða minna hlutfall af tekjum sínum til að halda uppi samfélagsþjónustu en þeir sem eru með meðaltekjur og greiða ekkert til sveitarfélaga sinna. Það er óréttlæti og mér finnst það eitt af meginmarkmiðum skattbreytinga sem við eigum að standa fyrir.

Fyrir upptöku fjármagnstekjuskatts höfðu ríkustu 10% heimila 21% allra fjölskyldutekna í landinu en árið 2007 hafði sami hópur, 10% ríkustu heimilin, 40% allra fjölskyldutekna á Íslandi en greiddi minna hlutfall af tekjum sínum til samfélagsins. Skattstefnan jók ójöfnuð í landinu og auk þess rýrðu stjórnvöld bæði barna- og vaxtabætur til ungra fjölskyldna umtalsvert á síðustu árum fyrir aldamót og allt til 2006 en það dró einnig úr jöfnunaráhrifum skatta og bótakerfis. Niðurfelling hátekjuskattsins á árabilinu 2003–2007 magnaði svo þessa þróun enn frekar en þannig var beinum ívilnunum úthlutað til hátekjufólks um leið og skattbyrði lágtekjufólks, lífeyrisþega, ungra barnafjölskyldna, einstæðra mæðra og fólks í lágt launuðum störfum var aukin.

Ég tel að fjárlagafrumvarpið skoði skattstefnuna í landinu og taki hana til gríðarlegrar endurskoðunar og það er markmið okkar í nefndum Alþingis. Þess má geta að í samantekt KPMG, sem hefur tekið saman yfirlit yfir jaðarskatta í ýmsum löndum, kemur fram að hátekjuskattur í Danmörku er 62,3% en verður 55,4% frá og með næstu áramótum. Í Svíþjóð er skattprósentan 56,7%. Í þriðja sæti á þessum lista er Holland með 52% skatt og Noregur er í 18. sæti ásamt fleiri löndum með 40%. Þetta eru þau lönd sem við berum okkur hvað helst saman við.

Skoðum málið á Íslandi. Hinn 1. júlí sl. tók gildi lagabreyting sem leggur á 8% hátekjuskatt á allar tekjuskattsskyldar tekjur yfir 700 þúsund. Almenn skattprósenta hér á landi er í kringum 37,2% en skattur af síðustu krónu þeirra sem eru með umtalsverðar tekjur eða yfir 700 þúsund er 42,5% svipað því sem gerist m.a. á Írlandi og í Kína. Ég er ekki að segja að við ættum að fara svo langt en ég held hins vegar að við ættum að skoða tekjuskattskerfi okkar vegna þess að við viljum búa við gott félags-, mennta- og heilbrigðiskerfi.

Ég held að við ættum líka að skoða hvernig við skattleggjum hagnað og arð af fyrirtækjunum. Ísland skattleggur hagnað af atvinnurekstri mun vægar en t.d. Danmörk, Finnland, Noregur og fleiri lönd sem við berum okkur helst saman við, svo sá frasi sé notaður. Samanlögð skattlagning á hagnaði í fyrirtækjum árið 2008, tekin nú sem arður, er 23,5% en nærri 44% að meðaltali í OECD-ríkjunum og á milli 40–50% annars staðar á Norðurlöndunum. Rök fyrir lækkun skatthlutfalls félaga hafa m.a. verið þau að með því væru auknar líkur á að erlendir aðilar fjárfesti hér á landi en það hefur ekki gengið eftir.

Ég fagna þeirri umræðu sem átti sér stað áðan milli hv. þm. Sivjar Friðleifsdóttur og hæstv. ráðherra Steingríms J. Sigfússonar um skattlagningu á ferðamenn og í hvað við viljum setja þá peninga til uppbyggingar á ferðamannastöðum. Það tengist líka mjög þeim landnýtingarhugmyndum sem felast í ályktun frá hv. þm. Siv Friðleifsdóttur og verður lögð fyrir Alþingi.

Ég held að við ættum líka að skoða vel skattapólitíkina hvað varðar bifreiðar vegna þess að vörugjöld af bifreiðum árið 2007 voru um 11 milljarðar kr. en eru í dag áætluð 1,4 milljarðar. Þetta gefur okkur tækifæri til að horfa verulega á hvernig við viljum láta skattapólitíkina stýra því fjölorkusamfélagi sem okkur öll dreymir um og viljum sjá verða að veruleika, að við förum að flytja inn rafmagnsbíla, metanbíla, vetnisbíla o.s.frv.

Á síðustu mínútunni í ræðu minni vil ég draga fram það sem ég mundi gjarnan vilja að efnahags- og skattanefnd mundi skoða ákveðið í vinnu sinni á næstu vikum, þ.e. að við örvum atvinnulífið með skattafslætti til þess að koma þeim peningum í umferð sem liggja núna í bankakerfinu, þ.e. að einstaklingum sem kaupa hlutafé inn í innlendan atvinnurekstur verði veittur skattafsláttur af mögulegum söluhagnaði. Það þurfum við að skoða í samanburði við gamla afsláttinn sem hér tíðkaðist í einni tíð, vegna þess að í bankakerfinu liggja umtalsverðir fjármunir sem væri öllum til hagsbóta að veita til atvinnulífsins að nýju. Þannig væri til staðar skýr hvati til fjárfestinga í atvinnurekstri og stækkar mengi fjárfestingarmöguleika fyrir innlenda aðila og stuðlar að enduruppbyggingu hlutabréfamarkaðar hér á landi.

Nú er tími minn á þrotum. Ég hlakka til að takast á við þessi málefni, skattapólitík okkar, á vettvangi efnahags- og skattanefndar á næstu vikum.