varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá Einari K. Guðfinnssyni, Oddnýju G. Harðardóttur, Róbert Marshall og Árna Þór Sigurðssyni um að þau séu á leið á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og geti ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur.
Eins og þegar hefur verið birt á vef þingsins tóku í gær sæti á Alþingi varamenn þeirra, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir, Guðrún Erlingsdóttir og Davíð Stefánsson, sem er 2. varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykv. n., en 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Auður Lilja Erlingsdóttir, hefur boðað forföll.
Kjörbréf Eyrúnar Ingibjargar Sigþórsdóttur, Önnu Margrétar Guðjónsdóttur, Guðrúnar Erlingsdóttur og Davíðs Stefánssonar hafa þegar verið rannsökuð og samþykkt en þau hafa ekki tekið sæti áður á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.
[Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, 5. þm. Norðvest., Anna Margrét Guðjónsdóttir, 5. þm. Suðurk., Guðrún Erlingsdóttir, 8. þm. Suðurk., og Davíð Stefánsson, 5. þm. Reykv. n., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.]