138. löggjafarþing — 6. fundur,  13. okt. 2009.

fjáraukalög 2009.

10. mál
[15:08]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svör hans. Það sem ég á við með því að virkja eftirlitsþáttinn er að fjárlaganefndin og starfsmenn hennar hafi aðgang að því sem gerist inni í stofnununum. Nú erum við með fjáraukalög og við vitum sumt og annað ekki. Sumt er kannski ekki rétt eins og ég benti á í sambandi við þjóðgarðana. Ég er ekki að halda því fram að þessu fé hafi verið sólundað eða illa nýtt en ég bendi á að það gangi jafnt yfir alla. Það er grundvallaratriðið.

Eins og ég sagði í ræðu minni áðan höfum við í fjárlaganefnd t.d. ekki fengið stöðuskýrslu frá neinni stofnun á þessu ári, október er að verða búinn og það er ekki búið að samþykkja ársreikninga fyrir 2008. Við getum bara yfirfært þetta á að ef þú rækir fyrirtæki og værir ekki búinn að skila ársreikningnum fyrir árið 2008 væri allt orðið brjálað, allt komið á eftir þér. Þannig eru einu sinni lögin. Ég held að við þurfum að breyta þessum vinnubrögðum. Þau eru ugglaust búin að vera mjög lengi við lýði og ekki hefur hæstv. fjármálaráðherra fundið þau upp núna á þessum örfáu mánuðum sem hann hefur setið en þetta þurfum við að gera. Ég vil líka ítreka að það er skoðun mín að bara við það að við sendum út skilaboð um að nú verði fylgst með og menn látnir sæta ábyrgð, þ.e. þeir sem standi sig ekki í starfi verði látnir víkja, held ég að muni laga eftirlitið og fjármálastjórn hins opinbera töluvert. Það er mín persónulega skoðun en til þess þurfum við að hafa algerlega óskorað umboð og geta fylgst með og tékkað á stofnunum hvernig þetta stendur.

Ég fagna því hins vegar sem hæstv. fjármálaráðherra sagði áðan að landstjórinn okkar, þ.e. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, ætli að beita þessu, að menn skili frá sér oftar og það er bara til góða.