138. löggjafarþing — 6. fundur,  13. okt. 2009.

fjáraukalög 2009.

10. mál
[16:26]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Menn verða að hafa innstæðu fyrir orðum sínum ef þeir gefa sér að ekki séu fagleg sjónarmið lögð til grundvallar ákvörðunum í stjórnsýslunni. Það er ekki nóg að segja svona út í loftið að það sé út af einhverri pólitískri afstöðu ráðherra sem niðurstöður verða með þessum hætti eða hinum. Menn eiga að talast við um þau mál með rökum og leggja á borðið hvað þeir hafi fyrir sér um að það hafi verið teknar ómálefnalegar ákvarðanir.

Um það að taka betur á og tímanlegar í málefnum ríkisins get ég nefnt sem dæmi að hefðu þær tekjuöflunarráðstafanir sem gripið var til á miðju sumri verið lögteknar um síðustu áramót hefði það bætt afkomu ríkissjóðs um 12–13 milljarða kr. umfram það sem nú er. Þær gefa um 12,5 milljarða kr. á síðari hluta ársins þannig að tekjur af því á ársgrundvelli hefðu orðið 24–25 milljarðar kr. Það hefði munað um minna í baráttunni við vaxandi og aukinn halla á ríkissjóði.

Ég tel að þessi ríkisstjórn og stjórnvöld almennt hafi gert það sem í þeirra valdi stendur í baráttunni við atvinnuleysið. Gripið hefur verið til margs konar og fjölþættra ráðstafana í þeim efnum sem allt of langt mál yrði að telja upp hér. Ég minni á átaksverkefni vetrarins sem skiluðu sannarlega þúsundum starfa, t.d. í byggingariðnaði. Það er hægt að telja þau upp, mörg stór verkefni og sum ákaflega vinsæl eins og tónlistarhúsið fræga sem hér er í byggingu, úrlausn í húsnæðismálum ýmissa opinberra fyrirtækja og þar fram eftir götunum.

Nú hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að hvetja ungt fólk til að fara frekar í nám en vera á atvinnuleysisbótum með því að lagfæra framfærslugrundvöll námsmanna og færa fé af atvinnuleysishliðinni yfir á námslánahliðina, svo annað dæmi sé tekið sem líka skiptir máli. Með ýmsum hætti er t.d. verið að reyna að aðstoða fyrirtækin við að klífa þann hjalla sem er erfiðastur og strandar á í þessum fjárfestingarverkefnum en það er að fá fjármagn. Það er nefnilega ekki (Forseti hringir.) þannig að einhverjir úrskurðir (Forseti hringir.) umhverfisráðherra strandi einu eða neinu í þessum efnum. Það þekki ég mjög vel, vegna þess að ég (Forseti hringir.) er að reyna að aðstoða mörg þessi fyrirtæki með bréfaskriftum til banka og fundum með slíkum aðilum við að reyna (Forseti hringir.) að fá úrlausn sinna fjármögnunarmála.