endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Töluvert miklar umræður voru hér á fyrri stigum um hversu heppilegt það væri út frá heilbrigðissjónarmiðum að gera þetta með þeim hætti sem boðað er með þessari Evrópureglugerð. Ég verð samt að segja að með hliðsjón af því að við erum á miðri vegferð til Brussel — mig langar til að spyrja hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hvort hann hafi rætt þetta við hæstv. utanríkisráðherra, hvernig hann skilur innleiðingar á tilskipunum Evrópusambandsins ef það er mat ráðherrans að hvenær sem okkur hentar sé hægt að setja allt öðruvísi reglur en gert er ráð fyrir úti í Brussel.
Ég get ekki ímyndað mér að þetta gangi upp. Jafnvel þótt hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra reyni að finna þessum skoðunum sínum einhvern stað held ég því miður að hæstv. ráðherra sé kominn út á afar hálan ís í viðskiptum sínum við Brussel. Ef þetta heldur svona áfram mikið lengur verður það bara til þess að ráðherrann verður kannski gerður afturreka með málið þegar við komum til ESA með þetta mál. Ég veit ekki hvernig það er í þessum spurningalistum sem hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur verið að svara nótt og dag. Sést þessum skoðunum hans stað í spurningalistunum og hvernig er þeim svarað gagnvart Brussel-valdinu?