endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvaða áhrif þetta hefur, ég þekki það bara ekki og ætla þar af leiðandi ekki að leggja í þá orðræðu, hvort við verðum gerð afturreka með þetta frumvarp eða ekki. Hið sama gildir um hugsanlega samningsstöðu okkar þegar kemur að aðildarviðræðum. Í fyrsta lagi veltur samningsstaða auðvitað á því hvort við verðum gerð afturreka með þetta frumvarp og í öðru lagi hvað þetta tekur langan tíma og hversu langan tíma aðildarviðræðurnar kunna að taka.
Við erum að óska eftir aðild að bandalagi og við óskum eftir því sjálf, vel að merkja, það er ekki verið að biðja okkur um að koma inn. Við óskum eftir aðild að bandalagi sem hefur ákveðið að taka höndum saman um að deila með sér ábyrgð og valdi á verkefnum sem menn telja betur komin sameiginlega en hvert í sínu lagi. Auðvitað þýðir það að við verðum að undirgangast ýmislegt sem okkur kann að mislíka en það vill svo til ef maður skoðar aðildarsamninga einstakra ríkja að þar finnast undanþágur sem síðan eru til staðar þegar önnur ríki sækja um. Hvað varðar þetta sérstaka mál þekki ég þó ekki og hef ekki forsendur til að svara spurningunni.