endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Kannski ég orði spurninguna þannig: Ef Evrópusambandið fengi á tilfinninguna að við værum ekki tilbúin til að uppfylla þær skuldbindingar sem við nú þegar höfum undirgengist með aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu, telur hv. þingmaður að skoðun þeirra og mat á því hvort við værum hæfur umsækjandi eða ekki hefði ekki svolítið áhrif á það mat? Gefum okkur að þetta uppfylli ekki allar kröfur tilskipunarinnar – mundi það ekki hafa áhrif á mat Evrópusambandsins um hvernig þessar viðræður gengju allar saman?
Þingmaðurinn talaði um undanþágur. Það er rétt að ýmis aðildarríki hafa fengið eina og eina undanþágu en þær eru ekki varanlegar. Við vitum að við erum, eins og þingmaðurinn sagði, að sækja um aðild að sambandi af fúsum og frjálsum vilja, lýðræðislega. Við erum ekki öll sammála um það en allt í lagi, ég get fallist á það. — Alþingi tók þessa ákvörðun með minnsta mögulega mun en ákvörðunin var tekin. Við erum með því að samþykkja að undirgangast það Evrópusamband sem fyrir er. Við getum ekki sagt: Við viljum sækja um aðild að Evrópusambandinu og reyna svo að breyta því varanlega. Okkur hefur verið sagt það. Undanþágurnar eru því tímabundnar og undanþágurnar felast í aðlögun. Ef hæstv. ráðherra nær fram undanþágu á þessu sviði held ég því að hann verði að sætta sig við á einhverjum tímapunkti að undanþágan rennur út. Ekki satt?