endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Vissulega er þó ekki annað hægt en tengja þetta Evrópusambandinu þar sem þetta er afleiðing af því að við erum aðilar að EES og við erum nú í því ferli sem núverandi ríkisstjórn kom á, þ.e. að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Eins og einn hv. þingmaður kom inn á í umræðunni þurfum við m.a. að fara að skilgreina samningsmarkmiðin varðandi landbúnaðinn.
Jafnframt kom fram í máli hv. þm. Önnu Margrétar Guðjónsdóttur að hún teldi möguleika á miklum undanþágum í þeim efnum þannig að vissulega tengist þetta mál og hæstv. ráðherra getur ekki horft fram hjá því. Ég vil ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra hvort hann geti upplýst okkur um hvaða lögfræðingar og sérfræðingar í Evrópurétti það voru sem veittu ráðuneytinu ráðgjöf í þessu máli. Það er gríðarlega mikilvægt að við séum upplýst um það vegna þess að hingað til hefur ekki legið á ljósu að það mætti ganga þetta langt. Ég heyri að hæstv. ráðherra er mjög fylginn sér í þessu máli og mjög öruggur með að þetta standist Evrópuréttinn og að hann leggi þarna ekki til eitthvað sem okkur er ekki heimilt samkvæmt EES-samningnum. Það væri því gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá að vita hvaða sérfræðingar í Evrópurétti það eru sem voru ráðuneytinu innan handar í þessu máli.