138. löggjafarþing — 6. fundur,  13. okt. 2009.

endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

17. mál
[18:31]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi Evrópusambandsaðildarvinnuna þá legg ég mig fram um að vinna alla þá vinnu vel sem til míns ráðuneytis heyrir. Ég tel að starfsfólk ráðuneytisins hafi sýnt mikinn dugnað og vandvirkni í að skila svörum við þeim spurningum sem var krafist og þannig mun ég vinna áfram varðandi þessa aðildarumsókn þótt ég sé ekki stuðningsmaður Evrópusambandsaðildar.

Varðandi þennan þátt sem hv. þingmaður nefnir. Ég væri ekki að flytja frumvarpið ef ég teldi ekki að þetta stæðist lög, ég vil bara árétta það. Það er alveg rétt að kvaddir hafa verið til ýmsir lögfróðir menn, ég nefni lögfræðinga utanríkisráðuneytisins sem haft var samráð við vegna samningu þessa þáttar frumvarpsins. Ég nefni einnig lögfræðinga eins og Stefán Má Stefánsson og Lárus Blöndal sem komu á minn fund og lögðu sín ráð fram. Þess vegna frábið ég mér þessa tortryggni hv. þingmanna og tel að við eigum einmitt að standa saman þétt að baki þessum mikilvægu hagsmunum þjóðarinnar varðandi fæðu- og matvælaöryggi sem hér er lagt upp með. Ég er sannfærður um að þegar þau lög hafa verið sett sem hér er lagt til verðum við betur sett en áður.