Afbrigði um dagskrármál.
Frú forseti. Ég er alveg sammála hv. þingmönnum að það er mikilvægt að hér fari fram vönduð og upplýst umræða um málið. Nú er það svo að það er hv. þingmönnum í fersku minni og alveg óvenjulega þaulkunnugt að uppistöðu til og efnisatriðum vegna þess að það var hér til umfjöllunar í allt sumar. Það er sömuleiðis þannig að menn fengu á þessu kynningu í fjárlaganefnd, og forustumönnum stjórnarandstöðunnar var kynnt þetta auk þingflokka stjórnarflokkanna á sunnudaginn. Vissulega er þó rétt að málinu var ekki dreift fyrr en í gær.
Ég met málið þannig að það væri ákaflega æskilegt að fjárlaganefnd sem hefur ærinn starfa með höndum kæmist sem fyrst til að vinna í þessu máli. Þess vegna væri æskilegt að það kæmist til nefndar að undangenginni vandaðri og góðri umræðu sem hér ætti að geta farið fram, en að sjálfsögðu er það í höndum þingsins sjálfs að ákveða hvort það muni svo miklu um þennan sólarhring sem vantar upp á að málið hafi legið nógu lengi á borðum þingmanna. Það ræðst þá bara í atkvæðagreiðslu þar um.