138. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2009.

fjárhagsstaða Landsvirkjunar og framtíðarhorfur.

[14:39]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Fyrst eitt atriði sem bar á góma í máli fyrirspyrjanda og ég hafði ekki tíma til að svara, varðar ábyrgðargjaldið og athugasemdir ESA þar um. Það er einfaldlega verið að undirbúa lagabreytingar sem fela það í sér að meðferð þess verði algerlega í samræmi við evrópskar reglur þannig að það sé hlutlaust endurgjald fyrir ígildi þeirra hlunninda eða þess stuðnings sem falinn er í ríkisábyrgðinni eins og eðlilegt er við fyrirtæki á samkeppnissviði.

Það er auðvitað þannig að ríkið og Landsvirkjun eru nú u.þ.b. eins nátengd og tveir aðilar geta verið. Fyrirtækið er í 100% eigu ríkisins, auk þess sem ríkisábyrgð er á stærstum hluta skuldbindinga þess. Þess vegna verð ég að segja að ég var undrandi eins og sjálfsagt fleiri á því hvernig matsfyrirtækin meðhöndluðu Landsvirkjun, tel í sjálfu sér enga ástæðu til þess að hafa hvorki þær áhyggjur af stöðu fyrirtækisins og þaðan af síður að eigandinn muni ekki standa við bakið á því eða sé ekki fær um það ef á þyrfti að halda. Til marks um það er m.a. sá viðauka- eða viðbúnaðarsamningur sem ég nefndi frá sl. vori, þar sem Landsvirkjun getur sótt sér allt að 300 milljónir dollara ef ég man rétt, hvenær sem er ef fyrirtækið þyrfti á slíku að halda. Þannig að til viðbótar því lausafé og þeim aðgangi að lánalínum sem fyrirtækið hefur þá er slíkur viðbúnaðarsamningur til staðar. Ef matshæfi ríkisins styrkist ætti það að koma Landsvirkjun til góða ef fyrirtækin eru sjálfum sér samkvæm og kannski kemst Landsvirkjun þá upp úr þeim flokki sem hún er í núna.

Ýmis fjárfestingarverkefni hefur borið hér á góma og stjórnarandstæðingar talið að áform um orku-, auðlinda- og umhverfisgjöld hafi þar sett strik í reikninginn, en alla vega ekki í því tilviki sem nefnt var hvað varðar fyrirtækið Elkem því að fyrir stuttu hitti ég forsvarsmenn þess fyrirtækis og þeir upplýstu einmitt að þeir væru ekki í aðstöðu til að taka neinar bindandi ákvarðanir um sín fjárfestingaráform fyrr en á árinu 2011.

Afkoma Landsvirkjunar er auðvitað mjög háð eftirspurn og verði eftir álveri. Ég get tekið undir það sem hér kom fram að það er kannski stærsti einstaki (Forseti hringir.) áhættuvaldurinn í afkomu og framtíðarhorfum þessa fyrirtækis hversu algerlega afkoma þess er í raun orðin (Forseti hringir.) háð þróun á heimsmarkaði á verði fyrir þennan eina málm.