afskriftir af höfuðstól lána íslenskra heimila og rekstrarfyrirtækja.
Frú forseti. Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson og hv. þm. Þór Saari ræddu nokkuð um verðtrygginguna og áhuga þeirra á að afnema hana eða koma henni frá. Þar sem ég er nú eini samfylkingarmaðurinn í húsinu þótti mér rétt að kveðja mér hljóðs og taka til máls því ég er sammála þeim, ég vil verðtrygginguna frá. En hvað er verðtrygging? Hún er ekkert annað en áhættuálag fyrir að eiga litla mynt í litlu samfélagi sem er opið. Þess vegna þótti mér athyglisvert að þeir hinir sömu sem vilja verðtrygginguna burt skuli ekki koma með okkur samfylkingarmönnum í þá vegferð að íhuga alvarlega að taka upp nýja mynt hér í þessu landi. Ég tel að eina leiðin til þess að losna við verðtrygginguna sé að skipta um mynt. (Gripið fram í: … af gömlu lánunum?) Við skoðum síðan í framhaldinu hvernig ber að taka á því. Við sjáum það, og ég held að ég geti miðlað þessu til þingheims, að á fundi viðskiptanefndar komu fulltrúar bankastofnunar sem bjóða í dag upp á lán með óverðtryggðum vöxtum og það er engin eftirspurn eftir lánum með óverðtryggðum vöxtum. Við þurfum því að skoða vel hvernig við horfum á þetta mál. Ég tel að eina leiðin til þess að afnema verðtrygginguna — eins mikið og ég er sammála hv. þingmanni um nauðsyn þess að koma henni frá, svo getum við talað um títtnefndan forsendubrest — sé að skipta um mynt í þessu litla samfélagi okkar.