138. löggjafarþing — 12. fundur,  21. okt. 2009.

aðgerðir til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum.

47. mál
[14:57]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég er komin upp til að þakka hv. þm. Siv Friðleifsdóttur fyrir að benda á hvaða tími er kominn í árinu en það styttist mjög í sveitarstjórnarkosningar. Þetta er kannski dæmi um það hvað þingmenn er uppteknir af öðrum málum en þeim sem eru í nánustu nánd eins og t.d. sveitarstjórnarkosningum.

Ég vil einnig hrósa hæstv. félagsmálaráðherra fyrir skýr og góð svör. Það er greinilega margt í gangi í ráðuneyti hans og hjá Jafnréttisstofu sem kannski ekki liggja fyrir upplýsingar um svona dagsdaglega. Ég vil hvetja ráðherrann til að fara af stað með einhvers konar kynningu eða kynningarátak eða greinaskrif þar sem skýrt er hvað er verið að gera því það er grundvöllur áframhaldandi byggðar og samkomulags hér og þróunar samfélagsins að konur og karlar komi jafnt að því borði að stjórna hjá sveitarfélögum.