138. löggjafarþing — 13. fundur,  22. okt. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[13:31]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Þá er enn á ný komið mál sem við útkljáðum fyrir nokkrum vikum síðum og ég hélt að við hefðum gengið frá því endanlega en svo var ekki og má kannski segja að allt málið sé komið á byrjunarreit. Ég vil samt byrja á því að segja að við framsóknarmenn höfum alltaf sagt að við viljum að Íslendingar, nú sem áður, standi við allar sínar skuldbindingar nema ef ágreiningur er um fjárhæðir sem standa út af, þá viljum við að sjálfsögðu að sá ágreiningur sé leystar fyrir hlutlausum dómstólum.

Hæstv. fjármálaráðherra kom að því í ræðu sinni áðan að í rauninni hafi hann staðið frammi fyrir orðnum hlut vegna þess að í haust hafi þeir sem réðu ríkjum þá, Samfylkingin og sjálfstæðismenn, skrifað upp á Icesave-samningana. Hann las svo upp úr gögnum máli sínu til stuðnings. Þetta stenst einfaldlega ekki skoðun vegna þess að það eina sem ráðamenn sögðu á þeim tíma er það sama og við segjum í dag að að sjálfsögðu virði Ísland allar skuldbindingar sínar. En það þýðir ekki að við tökum á okkur skuldir sem við eigum ekki að greiða. Það þýðir heldur ekki að við tökum á þjóðina skuldir sem gera það að verkum að hér verður erfitt að búa næstu árin, jafnvel áratugina. Við framsóknarmenn höfum barist fyrir því allan þennan tíma að sannleikurinn í málinu komi fram, að fólk átti sig á því hvað Alþingi Íslendinga er að gera.

Hæstv. fjármálaráðherra kvartaði undan því í ræðu sinni að hann hefði ekki fengið að sjá gögn síðasta haust. En hvernig var meðferð málsins í sumar? Við börðumst fyrir því að fá aflétt leynd af ýmsum leynigögnum sem sett voru í möppu og geymd á nefndasviði. Við börðumst fyrir því að lögfræðileg álit frá breskum lögmannsstofum yrðu gerð opinber og við börðumst líka fyrir því að Memorandum of Understanding frá því í október 2006 yrði gert opinbert. Af hverju gerðum við það? Jú, öll þessi gögn sýndu fram á að Íslendingar hefðu aldrei tekið á sig ríkisábyrgð fyrir bankana vegna hruns eins banka. Það var hvergi að finna í þessari yfirlýsingu frá árinu 2006. Við börðumst líka fyrir því að þessi gögn kæmu fram svo þjóðin mundi átta sig á því hvað við værum raunverulega að skrifa undir. Kannski leiddi það til þess að hér voru gerðir fyrirvarar jafnvel þótt við hefðum viljað ganga lengra í þeim efnum en var gert fyrr í haust.

En enn á ný þurfum við og aðrir sem ekki hugnast þessir samningar að standa í þessum ræðustól og leiðrétta rangfærslur. Hvernig geta ráðamenn þjóðarinnar komið í ræðustól og fullyrt að þetta sé betri niðurstaða en fékkst í fyrirvörum Alþingis nú í haust? (Gripið fram í.) Hvernig geta nefndarmenn eða þeir sem voru settir í þessa samninganefnd fullyrt í fjölmiðlum að niðurstaðan sé jafnvel hagstæðari fyrir Ísland en fyrri samningar? Það er svona málflutningur sem við erum að leiðrétta. Í ræðu var gengið svo langt að halda því fram, þar sem önnur rök halda ekki, að þetta hlyti að vera einhver afleiðing af því þegar bankarnir voru seldir á sínum tíma. Það er margt gagnrýnisvert við þá framkvæmd, ég skal vera fyrsti maður til að viðurkenna það. En ég get ekki séð hvernig menn fá tengingu milli sölu bankanna og þess vanda sem við glímum við nú. Höfum eitt í huga: Íslandsbanki var ekki einkavæddur. Hann var í einkaeigu og hann gerði nákvæmlega sömu hluti og hinir bankarnir.

Nú koma lærðir menn fram og segja að jafnvel þó að okkur beri ekki lagaleg skylda til að greiða þá beri okkur hugsanlega siðferðisleg skylda til að greiða þessar skuldir. Með öðrum orðum, menn sem unnu hjá einkafyrirtækjum fóru til útlanda, stofnuðu innlánsreikninga í öðrum löndum. Að börnunum okkar beri síðan siðferðisleg skylda til að greiða fyrir hugsanlegar misgjörðir þessara manna — ég get ekki séð að komandi kynslóðir eigi að bera ábyrgð á þessum mistökum. Það er ekki endalaust hægt að koma fram og skella skuldinni á einhverja aðra en núverandi stjórnvöld. Áttum okkur á einu, hér voru í gildi lög sem voru innleidd samkvæmt löggjöf Evrópusambandsins, tilskipun sem hæstv. fjármálaráðherra sagði áðan í ræðu sinni að hefði verið innleidd með löglegum hætti. Það var á grundvelli þessarar tilskipunar sem hægt var að stofna til útibúa í öðrum löndum. Þetta var einfaldlega galli á regluverki Evrópusambandsins. Og þegar menn segja að það hafi verið Íslendingar sem gerðu mistök er það ekki alls kostar rétt vegna þess að það voru Evrópubúar sem störfuðu samkvæmt evrópskum reglum og gerðu nákvæmlega sama og aðrar þjóðir höfðu leyfi til að gera. Að íslensk þjóð, ungmenni, börnin okkar, eigi að taka á sig gallana á þessu regluverki get ég ekki séð að sé þeirra siðferðislega skylda.

Það voru margar aðrar fullyrðingar sem við þurftum að glíma við. Ein þeirra var sú að við þyrftum að borga Icesave vegna þess að annars félli EES-samningurinn sjálfkrafa niður. Þetta var fullyrt af hæstv. félagsmálaráðherra. Menn yrðu að grípa í taumana. Hæstv. utanríkisráðherra, sem hefur verið manna málefnalegastur í þessari umræðu, kom fram og sagði: Að sjálfsögðu er slíkt fráleitt. Af hverju? Jú, vegna þess að það er fráleitt. Það er miklu flóknara verk og það þarf öll aðildarríkin til að fella EES-samninginn og það hefur ekkert með Icesave að gera.

Það var líka fullyrt að 23. október mundi eitthvað stórkostlegt eiga sér stað ef við mundum ekki samþykkja Icesave. Það er dagurinn á morgun og ég sé ekki að eitthvað stórkostlegt muni gerast en það er dagurinn sem greiðsluskylda á að falla á íslensku þjóðina. Hvað hefði svona stórkostlegt gerst? Í fyrsta lagi hefðum við sparað íslensku þjóðinni um 40 milljarða, sem slagar hátt upp í það sem við eyðum í allt menntakerfið einu ári. Hefði ekki verið gott að vera í þeirri stöðu að Bretar og Hollendingar hefðu þurft að sækja málið á hendur Íslendingum fyrir íslenskum dómstólum? Það hefði stórbætt stöðu Íslendinga. Hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. utanríkisráðherra fullyrtu að það væri hugsanlega óhagstæðara Íslendingum að fara í mál og tapa því. Hvernig fá menn slíkt út? Það er ofvaxið mínum skilningi. Við værum alltaf í betri stöðu en við erum í nú. Af hverju er það? Jú, vegna þess að í Icesave-samningunum er okkur gert að greiða meira en við yrðum lagalega skuldbundin til að gera þótt við yrðum dæmd til að greiða 20.887 þúsund evrur samkvæmt Evróputilskipuninni.

Fyrrverandi samherji hæstv. utanríkisráðherra Össurar Skarphéðinssonar, Jón Baldvin Hannibalsson, sagði að menn yrðu að hafa í huga að þá yrði látið reyna á neyðarlögin, það fullyrti hann í viðtali. Nú eru í gangi fjölmörg dómsmál þar sem verið er að láta reyna á neyðarlögin, það hafa Belgar og Þjóðverjar gert, ásamt öðrum þjóðum. Hverjum ætli sé í hag að neyðarlögin voru sett? Jú, Bretum sjálfum fyrst og fremst. Það er kannski þess vegna sem þeir setja núna inn í fyrirvarana ákvæði þess efnis að það muni ekki breyta réttarstöðu þeirra ef neyðarlögin halda ekki.

Hvað er það sem við erum að gera í dag? Jú, við ætlum að breyta þeim fyrirvörum sem Alþingi setti. Efnahagslegi fyrirvarinn gekk út á það að ef allt er í blóma, eins og Seðlabankinn spáði, gætum við borgað Icesave-reikningana og yrðum búin að því árið 2024. Hins vegar ef sú spá gengi ekki eftir yrðum við einungis að borga hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu, af hagvextinum, og þá væri það algert skilyrði að við mundum hætta að borga 2024. Af hverju settu menn þann fyrirvara, jafnvel þótt ég hafi ekki talið að nógu langt hafi verið gengið? Jú, menn gátu ekki hugsað sér að við mundum leggja svo þungar byrðar á komandi kynslóðir að þær gætu ekki séð fram úr augum. Þess vegna var ákveðið að greiðsluskyldunni mundi ljúka 2024 svo við mundum ekki leggja þessar þungu byrðar á börnin okkar og komandi kynslóðir. Það er út úr myndinni. Við eigum að borga hverja einustu krónu. (Gripið fram í.)

Í annan stað er hinum almenna fyrirvara breytt þannig að ef þar til bær úrlausnaraðili einhvers staðar úti í heimi, sem reyndar er alls kostar óvíst hver yrði — og er ágætt að beina þeirri spurningu að hæstv. fjármálaráðherra hvernig hann ætlar að tryggja að málið fari fyrir dóm og kannski líka að fá úr því skorið hverja hann telur þar til bæra úrlausnaraðila vera — kæmist að því að Íslandi bæri ekki að greiða þá var fyrirvarinn áður fyrr sá að Íslendingar, Hollendingar og Bretar ættu að setjast niður og semja upp á nýtt. En við settum þau skilyrði að ef Hollendingar og Bretar vildu ekki ræða við okkur hefðum við einhliða uppsagnarrétt á ríkisábyrgðinni. Uppsagnarrétturinn er nú tekinn út en um leið er fullyrt í okkar eyru að Bretar og Hollendingar mundu að sjálfsögðu setjast niður með okkur. Af hverju erum við þá að taka þennan fyrirvara út ef það er þannig? Og erum við ekki að ræða um þjóðir sem hafa verið með Íslendinga á hnjánum síðasta árið og misbeitt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sér í hag? Af hverju vilja þeir taka þetta út og eins Ragnars H. Halls-fyrirvarann sem skiptir Íslendinga tugi ef ekki hundruð milljarða? Nú er orðið skilyrði að EFTA-dómstóllinn álykti um málið að leitað verði til EFTA-dómstólsins, (Gripið fram í.) það er skilyrði. Það kom mjög skýrt fram (Gripið fram í.) að það yrði að leita ráðgefandi álits fyrir EFTA-dómstólnum. Það reynir á íslensk lög, íslensk gjaldþrotalög fyrst og fremst, og EFTA-dómstóllinn hefur ekkert um það að segja. Hann hefur ekki lögsögu í málinu og ég tel afar ólíklegt að það komi til þess að hann úrskurði á einhvern hátt um málið. Hvað erum við þá að tala um? Jú, við erum að tala um dýrasta veðmál Íslandssögunnar. Menn ætla að taka sénsinn á því að íslenskur dómari ákveði að leita ráðgefandi álits EFTA. Ég get ekki séð að nokkur dómari íslenskur spyrji EFTA-dómstólinn út í túlkun á íslenskum gjaldþrotalögum.

Að lokum, virðulegi forseti, hefur margt verið rætt um þær raunverulegu fjárhæðir sem við Íslendingar eigum að greiða. Eitt er staðreynd, við höfum ekki séð eignasafnið hjá Landsbankanum og getum þar með ekki sagt fyrir víst hvað það er sem fellur á íslenska ríkið en það verða einhver hundruð milljarða.