138. löggjafarþing — 13. fundur,  22. okt. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:33]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegi forseti. Hér hefur ríkisstjórnin dregið Icesave-málið fyrir þingið einu sinni enn. Það er dapurlegt í mínum huga að þurfa að standa hér og taka þátt í því leikriti sem hefur farið hér fram í dag þar sem að málatilbúnaður ríkisstjórnarinnar hefur verið öfugsnúinn og með ólíkindum. Það er hneisa fyrir land og þjóð að ríkisstjórn Íslands skuli ganga svona fram. Það er niðurlæging fyrir Ísland og fyrir Alþingi að löggjöf Alþingis skuli, að kröfu ráðherra sem studdir eru af hluta þingmanna, orðin háð samþykki Breta og Hollendinga.

Alþingi er orðið óþarft, starfar sem stimpilpúði fyrir framkvæmdarvaldið og gegnir hlutverki sem skiptimynt fyrir völd handa þingmönnum. Mér finnst tímasóun að vera með þennan leikaraskap og í raun má eins senda þingið heim. Ég átti ekki von á því að þurfa að upplifa svona stundir á Alþingi þegar ég kom hér inn í upphafi.

VG-liðar spila nú með og eru hræddir við að fella eitthvað sem þeir telja vera vinstri stjórn ef þeir kokgleypa ekki kröfur Hollendinga og Breta.

Ef stjórnin fellur verður það ákvörðun forsætisráðherrans að hún falli, ekki vegna þess að þingmenn fylgja samvisku sinni og sannfæringu. En í raun er þessi dagur bara eitt heljarinnar leikrit sem er sviðsett af þingmönnum meiri hlutans og leikstýrt af ráðherrum sem sömu þingmenn hafa valið.

Það má ekki fella vinstri stjórn, segir VG. Við erum jafnaðarmenn, segja samfylkingarmenn. Markaðurinn á að ráða, segja sjálfstæðismenn. Við höfum heyrt þetta allt áður.

Leikrit, segi ég, því að að sjálfsögðu var hér aldrei markaðshagkerfi eins og Sjálfstæðisflokkurinn hélt fram heldur fákeppni, einokun og spilling í nafni þess flokks. Viðskiptalífið á Íslandi var og hefur alltaf verið að stórum hluta til skrípamynd.

Leikrit, segi ég, því að bæði stefna Samfylkingarinnar og orðræða þingmanna hennar bendir til þess að þau viti í rauninni ekki hvað jafnaðarmennska er, en þau hafa í staðinn keypt höfundarrétt Tonys Blairs á bresk-bandarískri útgáfu ölmusukerfis sem hefur gert íslenska velferðarríkið að skrípamynd, sé miðað við annars staðar á Norðurlöndunum.

Leikrit, segi ég, því að draumsýn VG um að vera í vinstri stjórn er bara það, draumsýn. Hér er fylgt efnahagsstefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem er eins langt til hægri og mögulegt er. Hér fer fram stórkostlegur niðurskurður í velferðar-, heilbrigðis- og menntamálum og hér er fólk svipt heimilum sínum að kröfu fjármagnseigenda vegna efnahagshruns sem var af völdum sömu fjármagnseigenda og ríkisstjórn VG hefur nú slegið skjaldborg um. Þetta er einfaldlega ekki vinstri stjórn. Þvílík firring.

Frú forseti. Hér er því um eitt allsherjarleikrit að ræða sem ber nafnið Alþingi. Hefur leikrit þetta fengið neikvæða dóma frá 87% landsmanna og virðist Alþingi staðráðið í að halda áfram á þeirri braut að skilja sig frá hagsmunum almennings og hverfa endanlega inn í ímyndarheim valds og þess hégóma sem því fylgir.

Hér er í gangi leikrit, farsi og harmleikur í senn sem mun rýra orðspor Alþingis enn frekar, farsi og harmleikur um mál sem mun niðurlægja Ísland enn frekar á alþjóðavettvangi og senda þjóðina á enn meiri ferð inn í langvarandi efnahagsvandræði í stað þess að snúa vörn í sókn.

Efnahagslegu fyrirvararnir eru ónýtir, það er alveg sama hvað menn segja. Dómstólaleiðinni er í raun hafnað sem möguleika, það er alveg sama hvað menn segja. Ragnars Halls-ákvæðið er sundurtætt og málflutningur stjórnarliða í þessum efnum er einfaldlega öfugsnúinn og ömurlegur.

Árangur þverpólitískrar samstöðu Alþingis frá því í sumar er gerður að engu og afstaða þingmanna stjórnarflokkanna er einfaldlega orðin að dauðhreinsaðri leiðtogadýrkun þar sem þingmenn annars stjórnarflokksins samþykktu meira að segja niðurstöðuna fyrir fram, óséða. Svo blind leiðtogadýrkun stjórnarþingmanna er einfaldlega beint áframhald af fylgispekt stjórnarþingmanna fyrri ríkisstjórna, hún er í nákvæmlega engu frábrugðin og mun eins og fyrr leiða til vandræða, enda sér hvert mannsbarn sem smávegis þekkingu á sögunni að leiðtogadýrkun er ætíð slæm og hefur ætíð reynst Íslendingum illa. Ekki vegna þess að leiðtogarnir sjálfir séu endilega slæmir menn, heldur vegna þess að þeir eru menn, þeir eru mennskir menn og breyskir menn, gera mistök og hafa stundum rangt fyrir sér eins og aðrir. Þetta á líka við um konur þótt virðulegar séu.

Þingmenn hafa hins vegar kosið að læra ekki af sögunni og stjórnarflokkarnir og þingmenn þeirra munu því áfram baka þjóðinni tjón, sennilega óbætanlegt.

Ég ætla ekki að hafa ýkja miklu fleiri orð um þetta mál, frú forseti, það er skammarlegt fyrir Alþingi og þetta er hörmuleg niðurlæging fyrir landsmenn. Þetta er í boði ríkisstjórnar Samfylkingar og VG og þessi hneisa mun aldrei hljóta samþykki mitt.