ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Það var athyglisvert að hlusta á orðaskipti hv. þm. Ragnheiðar Elínar Árnadóttur og hæstv. fjármálaráðherra hér áðan. Ég vonast til þess að hæstv. fjármálaráðherra fylgist með ræðu minni og væri æskilegt ef hann mundi ná sáttum við hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Það væri gott að eiga orðaskipti við hæstv. ráðherra um þessi mál og ég vil taka það fram að mér finnst alveg til fyrirmyndar hvernig hann hefur haldið á umræðunni hér, þá er ég ekki að vísa til þess hvað hæstv. ráðherra hefur sagt, en hann tekur hér fullan þátt í þessari umræðu og hefur gert það í dag og er það til fyrirmyndar.
Virðulegi forseti. Það er hins vegar um margt mjög sérstakt í ljósi aðdraganda málsins að við ræðum þetta hér í dag. Og af því það er svo margt að gerast núna og hefur verið á þessu ári og í rauninni frá falli bankanna, er aðeins hollt að rifja upp hvað gerðist bara fyrir nokkrum vikum síðan. Ég vil þess vegna, með leyfi forseta, lesa úr frétt, fyrstu frétt á Stöð 2 15. ágúst 2009, um viðbrögð formanna við Icesave. Þar segir, með leyfi forseta:
„Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að afgreiðsla fjárlaganefndar á Icesave-frumvarpinu kalli á nýjar viðræður við Breta og Hollendinga.“ — Kalli á nýjar viðræður við Breta og Hollendinga. „Forsætis- og fjármálaráðherrar eru þessu ekki sammála, en segja þó að auðvitað verði að útskýra fyrirvarana fyrir viðsemjendum Íslendinga.“
Annars staðar, 28. ágúst, segir hæstv. forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir orðrétt í viðtali, með leyfi forseta:
„Það er ekki hægt að mínu viti að tala um að það sé verið að brjóta samninginn eða að þarna sé um eitthvert samningsrof að ræða. Ég held að sé alveg fullkomlega hægt að útskýra það fyrir þeim þannig að það sé hægt að ná sátt milli þjóðarinnar í þessu efni, líka vegna þess að Bretar og Hollendingar hafa fyrst og fremst hagsmuni af því eins og Íslendingar að við getum staðið við okkar skuldbindingar, þess vegna kvíði ég ekki að fara í samtöl við þá.“
Við erum hér með frumvarp fyrir framan okkur sem við þurfum að taka afstöðu til, sem er augljóslega afrakstur samningaviðræðna. Það væri ágætt að hæstv. fjármálaráðherra, og kannski hefur það komið fram hjá honum áður í dag, ég man þó ekki eftir því, að hann upplýsi um hverjir voru í samninganefndinni fyrir Íslands hönd í þessum samningaviðræðum sem forustumenn ríkisstjórnarinnar fullyrtu að yrðu ekki. Það væri ágætt til upplýsingar.
Ég held að það væri mjög æskilegt ef við þingmenn íslensku þjóðarinnar sameinuðumst um að standa þétt og vinna saman gegn viðsemjendum okkar. Við hefðum betur gert það strax en við gerðum það hins vegar ekki. Því miður fannst mér málflutningur hæstv. fjármálaráðherra í opnunarræðu hans í dag bera öll einkenni þess að menn fari ekki yfir valkostina, yfir stöðuna í málinu, heldur reyni þeir fyrst og fremst að benda á einhvern annan þegar kemur að ábyrgð á málinu. Ég er sannfærður um að það hefði verið mun farsælla ef við hefðum borið gæfu til þess að allir flokkar hefðu unnið saman að þessu máli í sumar, við værum í betri stöðu núna. En það þýðir lítið að tala um það núna.
Ég vil hins vegar, vegna orða hæstv. fjármálaráðherra hér í dag um að þetta væri allt saman Sjálfstæðisflokknum að kenna og við ættum þetta algjörlega skuldlaust, vísa í hæstv. forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún hélt ræðu fyrir nokkrum dögum síðan þar sem hún vék að þessu máli. Þar segir hún, með leyfi forseta:
„Það er ekki réttlátt að Íslendingar séu látnir gjalda fyrir gallaða löggjöf Evrópusambandsins.“ — Ég endurtek: Það er ekki réttlátt að Íslendingar séu látnir gjalda fyrir gallaða löggjöf Evrópusambandsins. „Það er ekki réttlátt að Bretar og Hollendingar hreinsi hendur sínar af því að þeirra eigin fjármálaeftirlit hafi brugðist, ekki síður en okkar, í Icesave-málinu og það er afar ósanngjarnt að þeir skuli torvelda samstarf Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Við urðum fórnarlömb þess að allar þjóðir sem við eigum helst samskipti við, bæði austan hafs og vestan, töldu nauðsynlegt að verja gallaðar fjármálareglur til þess að forða áhlaupi á banka víða um heim.“
Ég endurtek lokaorðin: Við urðum fórnarlömb þess að allar þjóðir sem við eigum helst samskipti við, bæði austan hafs og vestan, töldu nauðsynlegt að verja gallaðar fjármálareglur til þess að forða áhlaupi banka víða um heim.
Hér er það hæstv. forsætisráðherra sem talar. Ég verð að viðurkenna að mér fannst furðulegt hvað þessi ummæli hæstv. forsætisráðherra vöktu litla athygli. Ætli sá ráðherra sem gengið hefur hvað lengst í því að segja að málið sé algjörlega Íslendingum að kenna sé ekki hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, hann hefur jafnvel farið um heiminn og sagt það. Fram til þessa hafa ráðherrar í ríkisstjórninni almennt talað með þeim hætti. Þeir hafa verið að hamast við að útskýra fyrir þessari þjóð og öðrum að þetta sé allt saman okkur að kenna og við berum alla ábyrgð á því.
Núna í fyrsta skipti viðurkenndi hæstv. forsætisráðherra hið augljósa. Það er svolítið merkilegt að formaður Samfylkingarinnar hafi ekki gert það vegna þess að fram til þessa hefur Samfylkingin verið svo blind á átrúnaðargoðið, fyrirheitna landið, Evrópusambandið, að hún hefur ekki viljað gangast við hinu augljósa, sem er að þetta innstæðutryggingarkerfi er meingallað. Við urðum svo fórnarlömb þess eins og annarra fjármálareglna sem við tókum upp eftir að við undirgengumst EES-samninginn.
Því miður hafa þingmenn hér á landi, svo við tölum um ábyrgð, alls ekki bent á gallana hvað þetta varðar. Reyndar var það svo, kaldhæðnin er slík, að tveir þingmenn í það minnsta töluðu fyrir því að breyta innstæðukerfinu, tilskipuninni. Og ekki á þann veg að lágmarka hættu okkar Íslendinga, heldur þvert á móti komu þeir með tillögu um að við ættum að ábyrgjast allar innstæður. Ef sú tillaga hefði verið samþykkt, virðulegi forseti, værum við í miklu erfiðari stöðu en núna. Stærðfræðingur reiknaði það út að skuldbindingin hefði þá væntanlega verið um 400 milljörðum meiri en hún varð. Þarna var á ferðinni núverandi hæstv. forsætisráðherra og hv. þm. Ögmundur Jónasson og með í för var hæstv. núverandi fjármálaráðherra. Sem betur fer var þessi tillaga felld.
Þetta segir okkur kannski hvað það er misráðið að fara ekki af gagnrýni yfir þær tilskipanir sem koma frá Evrópusambandinu því að við höfum ekki einungis gert mistök hvað þetta varðar. Reyndar var núna í dag afgreitt frumvarp úr háttvirtri viðskiptanefnd sem gengur hreinlega gegn hagsmunum Íslendinga. Það hljómar ekki sem stórt mál en þar er verið að takmarka samkeppni á Íslandi og stuðla að hærra vöruverði út af tilskipunum, nánar tiltekið dómi, frá Evrópusambandinu.
Það er líka kaldhæðnislegt í þessu öllu saman, ef maður talar um að læra af reynslunni, og það er mjög mikilvægt að við ræðum það málefni, að sá banki sem ber ábyrgð á Icesave-reikningunum fékk iðulega bestu einkunn hjá alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. Það þótti til fyrirmyndar að sá banki væri með fleiri fjármögnunarleiðir en einungis skuldabréfaútgáfu eins og hinir bankarnir. Að vísu fór Kaupþing banki svo svipaða leið og Landsbankinn. Reyndar var Icesave árið 2007, minnir mig, í öðru sæti í vali á viðskiptahugmynd ársins. Þar greiddi rjóminn af mönnum í viðskiptalífi Íslands atkvæði um bestu viðskiptahugmyndir ársins. Þar með talinn var núverandi hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra sem sá ástæðu til þess að láta viðskiptahugmyndina Icesave fá annað sæti í vali á bestu viðskiptahugmynd þess árs.
Það þýðir ekki fyrir hæstv. fjármálaráðherra að koma núna og segja: Ég vissi þetta allt saman, ég sagði að þetta færi allt saman svona, við vinstri græn gerðum það, því að það var ekki þannig. Það var ekki þannig að nein stjórnmálaöfl, allra síst Vinstri græn, hvað þá Samfylkingin, bentu á það. Samfylkingin sagði alltaf að allt það góða í íslensku efnahagslífi væri EES-samningnum að þakka, það hefði ekkert með ríkisstjórnina að gera. Og sögðu vinstri græn einhvern tímann: Við þurfum að fara varlega því að tekjustofnarnir eru ekki traustir, við getum aukið ríkisútgjöld? Aldrei nokkurn tímann. Ef menn hefðu gengist við öllum tillögum þeirra væri ástandið miklu verra, enda eru þeir með mikla valdamenn á sínum snærum og stjórnarformaður stærsta lífeyrissjóðs landsins, LSR, er nú frammámaður í VG, hv. þm. Ögmundur Jónasson. Sá lífeyrissjóður hefur tapað hlutfallslega jafnmiklu og aðrir lífeyrissjóðir. Ég ætla engum vinstri grænum forustumönnum að hafa vitað þetta og samt sem áður beitt áhrifum sínum með þessum hætti, ég bara ætla þeim það ekki. En á sama hátt og ég ætla ekki að velta þeim upp úr því frábið ég mér endalausar ræður um að þeir hafi alltaf vitað þetta. Ef þeir vissu þetta er ábyrgð þeirra væntanlega mest allra, því að það er mikill ábyrgðarhluti að haga sér með þessum hætti og vita hvað muni gerast.
Því miður erum við búin að eyða miklum tíma nákvæmlega í umræðu sem þessa. Það er mikilvægt að læra af því sem miður fór, mjög mikilvægt, en núna erum við í þessari stöðu. Það er augljóst í mínum huga að stjórnarflokkarnir eru búnir að ná saman. Stjórnarsamstarfið er mjög erfitt hjá þeim, þeir eru búnir að ná saman um þetta og límið í ríkisstjórninni er eins og það er. Það er bara allt í lagi, en málið er það stórt að það er mjög mikilvægt að við förum vandlega yfir það.
Ég vil spyrja hæstv. fjármálaráðherra — ég spurði nefnilega hæstv. utanríkisráðherra í dag og fékk ekki skýr svör frá honum. Það segir mér að hann var ekki sammála því sem ég fór fram á. Ég fer bara fram á að við tökum tíma til að fara vel yfir þetta í þinginu og skoðum þetta af gagnrýni. Það er alveg ljóst að það er ekki rétt sem fram hefur komið að þetta væri innan ramma samkomulagsins, eins og forustumenn ríkisstjórnarinnar sögðu. Það sem hefur breyst eru mjög stórir hlutir eins og að ríkisábyrgðin falli niður 2024, það þekkjum við. Það er augljóst á þingmönnum stjórnarliðsins að þeir átta sig ekki á því að hvaða þýðingu það hefur þegar menn taka vextina upp fyrir 6% þakið af hagvexti. En á sama hátt er nauðsynlegt, og við heyrðum það í umræðum í dag, að fara yfir það sem snýr að Landsbankanum, að eignasamsetningu Nýja Landsbankans eftir samningana við gamla Landsbankann, hvaða áhrif og hvaða samspil er þarna um að ræða í ljósi þess að skuldbinding gagnvart Landsbankanum er í íslenskum krónum og hvaða áhrif breytt þróun gengisins getur haft hvað þetta varðar, svo eitthvað sé nefnt
Á þessari stundu ætla ég að reyna að halda því þannig að við förum eins málefnalega yfir þetta og mögulegt er. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra, og þætti nú gott ef hann mundi líta úr sinni góðu bók og kannski svara því: (Gripið fram í.) Kemur til greina að fara af gagnrýni yfir þetta og gera þá þær breytingar sem við teljum vera nauðsynlegar og bestar? (Forseti hringir.) Kemur það til greina, virðulegi forseti?