ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég bendi hv. þingmanni á í sambandi við þetta og þessa spurningu að lesa bara mat fagaðila sem hefur verið gert opinbert á því, Seðlabankans og efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Ég hef litlu við það að bæta og það sem þar er sagt er mjög í samræmi við margt sem ég hef sjálfur haldið fram að það gæti kallað yfir okkur mjög erfiðar aðstæður, orðið okkur til mikils tjóns ef þetta mál færi á hinn verri veg og í öfuga átt, færi í upplausn aftur, þá væru afleiðingar þess alvarlegar og enn þá að hluta til kannski ófyrirséðar.
Það að dagurinn í dag, 23. október, verður vonandi ekki til neinna stórra vandræða, helgast fyrst og fremst af því að málið er nú í samkomulagsfarvegi. Það er verið að leita eftir því að leiða það til lykta á grundvelli samkomulags milli aðila sem fyrir liggur og liður í því er milli aðila að sjá til þess að þessi dagsetning valdi ekki vandræðum.