tekjuskattur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að tala hlýlega til Framsóknarflokksins og vasklegrar framgöngu flokksins í umdeildu Icesave-máli. Þær hafa ekki allar verið svona hlýjar kveðjurnar frá hæstv. ráðherra þegar við höfum rætt þau mál. En það er ágætt að hæstv. ráðherra viðurkennir að með skeleggum málflutningi þingflokks Framsóknarflokksins náðum við miklum breytingum fram í því máli sem leit mjög illa út þegar það kom inn í sali Alþingis, og þrátt fyrir að gríðarlegur þrýstingur væri af hálfu ráðamanna og jafnvel annarra utan úr samfélaginu, að klára þyrfti Icesave-málið ekki seinna en strax, helst samþykkja það óbreytt, náðum við sem betur fer þeim árangri að málinu var breytt í flestum grundvallaratriðum.
Það sem ég vildi segja aðeins um þetta mál enn og aftur: Hér er um jákvætt mál að ræða. Við í stjórnarandstöðunni erum reiðubúin til þess að vinna að öllum góðum málum, en það sem ég hef verið að gagnrýna er að okkur er ekki hleypt að því borði. Hæstv. ráðherra getur einfaldlega ekki neitað því í ljósi þess hvað varð um þingsályktunartillögu um nákvæmlega sama mál sem þingflokkur Framsóknarflokksins hefur lagt fram frá árinu 2007. Hvers vegna í ósköpunum gat meiri hlutinn á þingi — af því að við erum efnislega sammála um málið — ekki samþykkt þá þingsályktunartillögu? Jú, svarið er einfalt: Vegna þess að Framsóknarflokkurinn er í stjórnarandstöðu og af því að hugmyndin kom frá þeim má ekki samþykkja hana.
Tökum fyrir örlög þingmála sem stjórnarandstaðan hefur lagt fram á undangengnum tveimur árum og við getum farið lengra aftur. Þau voru nú ekki glæsileg, örlög þeirra mála sem stjórnarandstaðan lagði fram í tíð ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. En það er fortíðin. Við þurfum að byrja upp á nýtt, við þurfum að innleiða á Alþingi nýjar vinnureglur vegna þess, eins og ég sagði áðan, að góðar hugmyndir koma úr öllum áttum og þær þarf að skoða en ekki láta svæfa þær í nefndum.