138. löggjafarþing — 17. fundur,  2. nóv. 2009.

tekjuskattur.

81. mál
[17:11]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni. Ég er þeirrar skoðunar að meta eigi allar tillögur og hugmyndir sem koma fram að verðleikum. Því miður hefur ákveðin hefð skapast, kannski um áratugaskeið, sem veldur því að tillögur, góðar tillögur stjórnarandstöðu ná ákaflega skammt. — Og horfir hv. þingmaður á einn þeirra þingmanna sem hér hefur verið hvað lengst, ég var tólf ár í stjórnarandstöðu. Þá voru framsóknarmenn við stjórnvölinn og á því tímabili lagði ég fram gríðarlegan fjölda margra góðra mála. Tvö þeirra, þ.e. um það bil eitt mál á hálfum áratug, náðu fram að ganga. Þau voru sárasaklaus og vörðuðu ættleiðingar og sennilega var það af virðingu við fortíð mína og áhuga minn á því máli sem Framsóknarflokkurinn hleypti þeim í gegn og á hann þakkir skildar fyrir það.

Það er rétt hjá þingmanninum að þetta er ekki gott. Að því er varðar hins vegar þá tillögu sem hér er til umfjöllunar þá er um að ræða hugmyndir sem ég veit ekki betur en hæstv. fjármálaráðherra hafi nýlega lýst yfir á þingi hjá sprotafyrirtækjum eða samtökum þeim tengdum að hann hefði í hyggju ásamt ríkisstjórninni að leggja fram frumvarp af þessu tagi. Þá getum við öll látið deilur niður falla, fallist í faðma og stutt hvert annað í viðleitninni við að ná þessu góða máli fram, því að málið er gott og Framsóknarflokkurinn á þakkir skildar fyrir það eins og margt annað sem hann hefur gert mjög jákvætt varðandi atvinnuuppbyggingu í landinu.

Að því er Icesave varðar þýðir ekkert að koma og skamma mig fyrir að hafa látið einhverjar eyrnafíkjur ríða yfir höfuð framsóknarmanna. Ég hef margsinnis skammað Framsóknarflokkinn úr þessum stól fyrir það að skilja ekki þegar hann vinnur sigra. Framsóknarflokkurinn var einn þeirra málsaðila, fárra, sem unnu sigra í því máli. Ég er ekki að biðja Framsóknarflokkinn um að styðja málið en hann á bara að gangast við því að þar náði hann árangri.