afskriftir skulda og samkeppnisstaða fyrirtækja.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson spurði mig um riftun á samningum sem gerðir eru núna í kjölfar hrunsins og við endurreisnina. Því er til að svara að lögum og reglum um riftun samninga hefur ekkert verið breytt og mér vitanlega stendur ekki til að breyta þeim. Raunar teldi ég mjög varhugavert ef við færum út á þá braut að stilla málum þannig upp að allir þeir samningar sem nú er verið að gera og allar þær áætlanir sem menn byggja á þeim samningum gætu verið í uppnámi vegna þess að síðar tækju menn annan pól í hæðina um hvernig endurskipuleggja átti fjárhag landsmanna.
Almennt vil ég segja um þessa fjárhagslegu endurskipulagningu að hún verður að langmestu leyti unnin í bönkunum og öðrum lánastofnunum, óhjákvæmilega. Það stendur upp á hið opinbera, bæði löggjafann, ráðuneyti mitt og aðra, að búa til ramma sem bankarnir starfa innan, gera kröfur til bankanna, sérstaklega um gagnsæi, verkferla og annað slíkt. Það hefur verið gert. Einn liður í því var að skipa þá nefnd sem við höfum rætt hér áður en það er auðvitað bara lítill þáttur í þessu eftirliti. Nú er þessi rammi kominn og eftirlitið er til staðar og verið er að auka það. Þetta er, held ég, eins og það á að vera. Auðvitað getur verið að það sé pottur brotinn í einhverjum ákvörðunum í bönkunum og þá á að draga það fram í dagsljósið og grípa til viðeigandi aðgerða en það á ekki að reyna að handstýra þessu ferli, hvorki úr sölum Alþingis né úr ráðuneytum. Það væri versta leiðin til að endurskipuleggja íslenska hagkerfið að gera þetta ferli allt saman pólitískt hvort sem það væri gert með beinum fyrirskipunum eða yfirlýsingum um hvað er einstökum stjórnmálamönnum þóknanlegt (Forseti hringir.) eða ekki.