138. löggjafarþing — 22. fundur,  10. nóv. 2009.

samgönguáætlun.

[13:52]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (F):

Frú forseti. Ég ætla svo sem ekki að fara að deila um keisarans skegg, en ég átti náttúrlega við að þær framkvæmdir sem eru nú í gangi eru í mínum huga ekki nýframkvæmdir næsta árs. Ég átti við, eins og margoft hefur komið fram í störfum samgöngunefndar, að væntanlega yrðu engin ný útboð til nýframkvæmda á næsta ári en ef það er ekki rétt hjá mér eru það tíðindi og ég fagna þeim.

Vissulega er samgönguáætlun í gangi en hana á að endurskoða á tveggja ára fresti samkvæmt lögum og sú endurskoðun átti samkvæmt mínum kokkabókum að fara fram fyrir ári. Gott og vel, menn sjá í gegnum fingur sér með það. Það var kannski erfitt að fara í þá áætlun fyrir ári vegna ýmislegs sem gerðist þá í októbermánuði og breytti forsendum áætlunarinnar. Núna er hins vegar kominn tími til að fara í þessa endurskoðun, mundi ég segja. Það stendur líka í lögum um samgönguáætlun að hæstv. samgönguráðherra eigi að gefa skýrslu um framkvæmd samgönguáætlunar á ári hverju og mér vitanlega hefur sú skýrsla ekki verið gefin Alþingi fyrir utan reyndar að það er búið að gefa út skýrslu í upphafi árs (Forseti hringir.) um siglingamálaþáttinn. Ég vil líka spyrja í þessu sambandi: Hverju sætir þetta?