138. löggjafarþing — 22. fundur,  10. nóv. 2009.

rafbyssur.

[13:59]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég vek athygli þingmanna á því að rafbyssa getur gefið frá sér 50.000 volta rafstuð. Samkvæmt skýrslu Amnesty International frá síðasta ári létust 300 manns á átta ára tímabili í Bandaríkjunum og 20 í Kanada af völdum notkunar rafbyssu að því er Amnesty greinir frá.

Ég hvet hæstv. dóms- og mannréttindamálaráðherra til að koma í veg fyrir að íslenska lögreglan verði vopnvædd með þessum hætti. (Gripið fram í.) Ég hvet hana eindregið til þess og ég tel í hæsta máta óeðlilegt að það sé tæknileg ákvörðun hjá embætti ríkislögreglustjóra hvort taka eigi upp ný valdbeitingartæki sem þessi og ég vona að (Forseti hringir.) þingheimur sé sammála mér um það.