138. löggjafarþing — 22. fundur,  10. nóv. 2009.

kolefnisskattar.

[14:05]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Ég hef lært það af reynslunni af þessari ríkisstjórn að það er skynsamlegast að reyna að leggja fram tiltölulega einfaldar spurningar í því skyni að reyna að fá svör. (Gripið fram í.) Þetta var mjög einföld spurning (Gripið fram í.) og hún var þessi: Er hæstv. ráðherra tilbúinn að styðja hugmyndir um kolefnisskatta sem munu leiða til þess að bensínlítrinn fari í tvöhundruðkall?

Hæstv. ráðherra svaraði þessari spurningu ekki. Hann gaf okkur til kynna að það væri verið að ræða um aukna skattlagningu á umferðina og ég vil inna hæstv. ráðherra eftir þessu frekar. Það er nefnilega alveg rétt að það hefur oft verið rætt um að breyta skattlagningu á umferðinni, lækka bensíngjöldin, þungaskattana og það allt saman, og breyta þessu. Hingað til hafa menn verið að ræða það í því samhengi.

Nú er hæstv. ráðherra greinilega að undirbúa sig undir að þurfa að kyngja því á sama tíma og hann leggur fram samgönguáætlun eða samþykkir fjárlagafrumvarp sem felur í sér engar nýjar nýframkvæmdir á næsta ári, (Forseti hringir.) að boða stórkostlegar, nýjar álögur á umferðina sem munu sérstaklega bitna á landsbyggðinni og ganga gegn þeim markmiðum sem hæstv. ráðherra talaði fyrir í sínu fyrra pólitíska lífi.