kolefnisskattar.
Virðulegi forseti. Aðeins af því að hv. þingmaður vill tala um mitt fyrra pólitíska líf, sem væntanlega er þá 2007 og þar á undan. Þar alveg rétt að ég hef oft tekið til umræðu flutningskostnað og skatta á umferð, það er alveg hárrétt. Mér hefur hins vegar aldrei orðið ágengt fyrr en í þeirri ríkisstjórn sem starfar núna. Þessi ríkisstjórn er fyrsta ríkisstjórnin sem stigið hefur skref til að lækka flutningskostnað, það hefur aldrei gerst áður. (Gripið fram í.) Ég man alveg eftir 150 milljónum, virðulegi forseti, sem settar voru inn til flutningsjöfnunar hjá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og ég man líka hvað það var svekkjandi þegar það var strikað út nokkrum mánuðum síðar og var ekki notað.
Þessi ríkisstjórn hefur þurft að fara þá leið í þeim breytingum og þeirri vinnu til þess að ná í meiri peninga til ríkissjóðs og eyða fjárlagahalla, að hækka hér skatta (Forseti hringir.) og þetta er undir eins og allt annað í þeim málum. Það verður að skoða kostina og gallana af þessu öllu saman.