fundarstjórnarumræða og dagskrá fundarins.
Frú forseti. Ég ætla að blanda mér aðeins í umræður um fundarstjórn frú forseta. Ég tel einmitt að frú forseti hafi tekið mjög móðurlega og mildilega á þingmönnum þegar þeir óskuðu eftir því að taka til máls undir þessum lið, fundarstjórn forseta, og vísa því alfarið á bug sem einn af varaforsetum Alþingis að þeir forsetar sem sitja í forsetastóli hverju sinni taki athugasemdir eða ræður einstakra þingmanna eitthvað sérstaklega persónulega. Forsetar hafa einmitt sammælst um það í forsætisnefnd að reyna að gæta jafnræðis hér og beita sömu tilhögun við að stýra fundum. Hv. þingmenn verða hins vegar að virða það að sá forseti sem situr í forsetastóli hverju sinni stýrir fundum Alþingis, hvort sem þingmönnum líkar það betur eða verr. Ég lýsi yfir fullu trausti á fundarstjórn frú forseta. Og eins og frú forseti hefur sagt (Forseti hringir.) brást hún strax við og sagðist mundu boða til fundar með þingflokksformönnum til þess að fara yfir þetta tiltekna mál.