138. löggjafarþing — 22. fundur,  10. nóv. 2009.

aukning aflaheimilda.

[14:45]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Nú á tímum erfiðs efnahagsástands verður að skoða allar leiðir til verðmætasköpunar, á tímum þar sem fólkið í landinu hrópar á aukna atvinnu og auknar tekjur, á tímum þar sem botnlaus skuldahít ríkissjóðs kallar á meiri gjaldeyristekjur, er freistandi að skoða allar leiðir til að auka vinnu, auka tekjur, og ekki síst gjaldeyristekjur. Við Íslendingar erum svo heppin að landið okkar og fólkið geymir ótal tækifæri í nýtingu auðlinda, jafnt í mannauði sem nýtingu náttúruauðlinda. Ríkisstjórninni hefur hins vegar gengið illa að nýta kraft fólksins, nýta auðlindirnar og þótt sumir ráðherrar og stjórnarþingmenn virðist vilja atvinnuuppbyggingu, ganga hvorki ríkisstjórnin né stjórnarliðar í takt. Þannig bregður hæstv. umhverfisráðherra ítrekað fæti fyrir nýtingu í orkugeiranum. Hæstv. fjármálaráðherra og hans aðstoðarfólk virðast finna upp á nýrri skattpíningu á fólk og atvinnufyrirtæki daglega, og Samfylkingin eins og hún leggur sig ræðst til atlögu gegn undirstöðuatvinnugrein landsbyggðarinnar og Íslands alls, sjávarútveginum, með glórulausri hugmynd að fyrningarleið, leið sem hefur nú þegar dregið allan mátt úr langtímaákvörðunum sjávarútvegsfyrirtækja.

Aukning aflaheimilda, og þar með hærra nýtingarhlutfalls fiskstofna, verður að skoða af skynsemi og varúð. Þeim, sem nýta auðlindir og ætla að gera það um alla framtíð, er vel treystandi fyrir að varðveita auðlindina og nýta hana hóflega. Þannig skila menn mestum arði af auðlindinni. Sjómenn hafa bent á það undanfarin ár að þorskstofninn sé að vaxa og að meira veiðist af stórum þorski en mörg fyrri ár. Niðurstöður vísindamanna eru á sama veg: Við erum á réttri leið.

Ég tek undir að það er skynsamlegt að auka aflaheimildir tímabundið til að örva atvinnulífið, til að afla meiri gjaldeyris. En það er líka nauðsynlegt að fara varlega í það og byggja á þeirri þekkingu sem við höfum. Við eigum að fara leið skynsemi og hófsemi í þessu máli sem og öllum öðrum.