aukning aflaheimilda.
Frú forseti. Þar sem ég hef mjög knappan tíma ætla ég nú ekki að endurtaka mikið af því sem hér hefur komið fram, en þakka fyrir þessa umræðu. Menn velta því náttúrlega mjög fyrir sér hvort hægt sé að auka aflaheimildir nú þegar að þrengir í samfélaginu og er skiljanlegt að menn skuli horfa til fiskveiðiauðlindarinnar í sjónum þegar kemur að því að reyna að afla meiri tekna í þjóðarbúið. Það er mjög skiljanlegt. Ég hef hins vegar sagt, og „presentera“ það sem mína persónulegu skoðun, að ef menn sjá ástæðu til þess að auka tímabundið aflaheimildir að verulegu marki, eins og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson talar um, t.d. 40.000 tonn í þorski, verði það að vera eitthvað sem hafi þá annan tilgang meðfram.
Ég hef kynnt þá tillögu að menn fari út í vísindaveiðar á þorski og reyni að nota aflaskipin við landið í rannsóknarskyni á sama tíma og við mundum hugsanlega auka aflaheimildir sem einhverju nemur og gefa jafnvel veiðarnar frjálsar tímabundið, á meðan verið væri að auka rannsóknarsvæði og sýnatökusvæði til þess að reyna að byggja á gleggri upplýsingar til framtíðar um hvað þessi auðlind gefur okkur í raun og veru og hverjir möguleikar hennar eru í framtíðinni. Það er náttúrlega mjög mikilvægt að við göngum vel um þessa auðlind og að við þekkjum hana vel. Við vitum að það er mikið brottkast. Við vitum líka að af þeim afla sem dreginn er úr sjó, t.d. á frystitogurum, fer mikið forgörðum, meira en helmingur jafnvel. Það eru allt atriði sem kalla á mjög ábyrga fiskveiðistjórnun og að menn stígi varlega til jarðar ef þeir ákveða aukningu aflaheimilda og reyni að nota þá tækifærið í vísindalegu skyni jafnhliða ef út í það verður farið.