aukning aflaheimilda.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær umræður sem hafa átt sér stað þó að mér hafi fundist þær á köflum ekki vera mjög markvissar um málefni dagskrárinnar, þ.e. um aukningu aflaheimilda. Ég nefndi aldrei neitt fiskveiðistjórnarkerfi og margir hefðu getað tekið hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur sér til fyrirmyndar með að ræða eingöngu það sem er á dagskránni.
Það sem ég vil segja er þetta: Þessar tillögur ganga út á, eins og ég sagði í upphafi máls míns, að engin áhætta er tekin gagnvart stofnstærð enda mundi ég aldrei hafa neinn málflutning uppi um að leggja til aukningu á aflamarki sem ég teldi að stofnaði stofnunum í hættu. Þetta snýst fyrst og fremst um að það sem hefur oft verið rætt á sjómannadögum, þ.e. fiskifræði sjómannsins. Við upplifum allt annað ástand á miðunum en Hafrannsóknastofnun setur fram. Samt sem áður nota ég það ekki sem málflutning hér heldur bendi eingöngu á einfaldar staðreyndir um að ef 40.000 tonnum er bætt við þorskkvótann mun þorskstofninn stækka um 14.000 tonn og hrygningarstofninn vera sá sami. Ég geri ákall um að við þær aðstæður sem þjóðarbúið er í núna tökum við svona ákvarðanir. Við þurfum ekki að rexa og pexa því þetta er mjög einfalt mál. Við eigum bara að ýta á græna takkann og gera þetta strax til þess að gefa þessum byggðarlögum von í þeirri varnarbaráttu sem þau eru. Þetta mun líka skaffa fleiri hundruðum manna störf. Þetta mun þýða 30 milljarða útflutningstekjur sem þýðir 90 milljarða innspýtingu í hagkerfið.
Frú forseti. Þeir sem telja að við þurfum þess ekki núna, það eru menn á villigötum. Við þurfum núna að fá innspýtingu í hagkerfið og með því að gera þetta sem ég legg til tökum við enga áhættu gagnvart stofnunum. Við eigum ekki að hika, við eigum að gera þetta strax.