hagsmunir Íslands í loftslagsmálum.
Herra forseti. Ég verð að taka undir með öðrum sem hér hafa talað í dag og óska virðulegum forseta til hamingju með nýju stöðuna. Við verðum að vanda okkur við að kalla ekki herrann „frú“ eins og við erum orðin vön.
Við ræðum hér afar mikilvægt mál, tillögu til þingsályktunar um hagsmuni Íslands í loftslagsmálum. 1. flutningsmaður, hv. þm. Siv Friðleifsdóttir, gerði ágætlega grein fyrir þessari tillögu í framsögu sinni áðan og gat þess að meðflutningsmenn værum við, allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og velflestir framsóknarmenn.
Það er alveg rétt sem hæstv. umhverfisráðherra sagði, það er svolítil tilhneiging í þessari umræðu til að gera ofboðslega flókið mál einfalt, en einhvern veginn náum við samt að flækja það enn þá meira í þeirri viðleitni að gera það einfalt. Ég ætla ekkert að taka sjálfa mig út úr því dæmi, en þó ætla ég að segja að þessi tillaga er í sjálfu sér mjög einföld. Hún snýst um það, sem á að vera augljóst, að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að gæta ýtrustu hagsmuna Íslands eins og maður skyldi ætla að ríkisstjórn á hverjum tíma geri alltaf. Það gladdi mig að heyra hæstv. umhverfisráðherra segja að það væri ætlun hennar og trúi ég því alveg ágætlega. Það var samt ýmislegt í máli hennar sem ég hafði meiri áhyggjur af.
Áður en ég kem að því vil ég líka taka undir með 1. flutningsmanni, hv. þm. Siv Friðleifsdóttur, um að ég tel að Alþingi Íslendinga ætti að senda fulltrúa frá hverjum flokki á þessa mikilvægu ráðstefnu. Þetta er ekki eitthvert smámál og jafnvel þótt hér sjáist klárlega á lista flutningsmanna á þessu máli að skoðanir stjórnarandstöðunnar, í þessu tilfelli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, virðist fara ágætlega saman held ég að það væri betri bragur á því að hver flokkur fengi að hafa þarna sinn formlega fulltrúa. Auðvitað geta allir farið eins og þeir vilja í sínu eigin hlutverki en Alþingi Íslendinga ætti að senda þangað fullt lið. Það hefur oft verið minna tilefni.
Ég fagna því líka að hæstv. umhverfisráðherra ætli að senda embættismenn sína í þingflokka stjórnmálaflokkanna. Ég held að það sé mjög mikilvægt og hvet ráðherrann til að gera það hið fyrsta og ég vona að hæstv. ráðherra muni þá taka til greina þær athugasemdir sem væntanlega koma fram í þeirri yfirferð. Ég veit að a.m.k. í mínum þingflokki eru miklar skoðanir á þessu máli en margir þar innan borðs gátu því miður ekki verið við umræðuna í dag vegna fundarhalda á vegum flokksins annars staðar. Og nú fer að verða áliðið kvölds. Margir í mínum flokki hefðu gjarnan viljað taka þátt í umræðunni hér í dag og hefðu þá væntanlega mikið til málanna að leggja í þeirri yfirferð og munu þá embættismennirnir væntanlega koma þeim góðu skilaboðum til ráðherrans.
Það sem ég er hrædd við í máli ráðherrans er ákveðin spéhræðsla, ef ég má nota það orð. Ég er ekki sammála því sem fór hér fram í andsvörum á milli þeirra tveggja áðan, að það væri langbest ef við þyrftum ekki undanþágu. Ég er bara alls ekkert feimin við að játa það að Ísland hefur í þessu tilfelli mikla sérstöðu og ef við höfum sérstöðu, hvort sem er í þessu máli eða öðru en sérstaklega ef við höfum sérstöðu sem kemur heiminum vel, eigum við að vera allsendis ófeimin við ekki bara að biðja um heldur fara fram á og krefjast undanþágna, eins og var gert við Kyoto-bókunina þar sem alþjóðasamfélagið viðurkenndi og sá sérstöðu Íslands í þessum efnum. Ég held að heimurinn hefði ekkert veitt litla Íslandi einhverja undanþágu ef heimurinn hefði ekki séð að þetta kæmi honum sjálfum vel.
Þetta mál er ekki bara mikilvægt út frá hagsmunum Íslands, við höfum rætt þetta hérna oft og ítrekað og ég segi það eina ferðina enn: Þetta mál er mikilvægt ef við horfum á það hnattrænt. Þess vegna væri best að segja ekki í einhverri spéhræðslu að við þyrftum ekki á undanþágum að halda, við eigum að standa algjörlega keik og segja: Sérstaða okkar er algjör í þessum efnum. Það er ekki af því við að höfum mengað svo mikið eða séum svo ómöguleg, nei, það er vegna þess að við höfum náð miklum árangri.
Hvort sem okkur líkar það betur eða verr er verið að framleiða ýmislegt í heiminum sem þarfnast mikillar orku. Við tókum þá umræðu hér fyrir skömmu þegar við ræddum annað mál á forræði hæstv. umhverfisráðherra, Suðvesturlínu. Og í orkumálum erum við Íslendingar ákaflega samkeppnisfær, bæði innan lands og líka ef við horfum á þetta hnattrænt með tilliti til umhverfisins.
Við megum ekki gleyma eðli þessara undanþágna sem við fengum í Kyoto sem er þannig að hér eru betri aðstæður en annars staðar til að framleiða með hreinni orku, framleiða með betri og hreinni hætti en gerist víðast annars staðar. Við eigum að vera stolt af því.
Við fengum góðan gest sem mikið hefur verið vitnað í hér, formann loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, sem sá einmitt þetta. Og ég vona að við festumst ekki í því hvort þetta eigi að snúast um álver eða ekki álver. Þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um það að íslenskt atvinnulíf hafi alla möguleika og íslensk stjórnvöld berjist fyrir íslensku atvinnulífi og íslensku samfélagi með öllum ráðum og allri dáð, fyrir því að hafa hér samkeppnisfærar og bestu aðstæður til að stunda atvinnulíf í sátt og samlyndi við umhverfið. Það er markmið okkar allra. Þess vegna eigum við að berjast af öllum krafti til að halda þessum undanþágum, ef það er það sem þarf. Ef það er einhver leið til þess að leysa það mál, þá fínt, þá skulum við gera það. Ég er ekkert að hengja mig í það að við þurfum endilega að vera með undanþágu.
Hæstv. ráðherra sagði að það gætti ákveðins misskilnings varðandi það að við þyrftum að halda ákvæðinu vegna þess að við værum að fara inn í evrópska viðskiptakerfið. Þá leyfi ég mér að vitna í mér fróðari menn í þessum efnum. Samtök atvinnulífsins rekja það einmitt á heimasíðu sinni þann 2. júní að misskilningurinn virðist vera ráðherrans í þessu efni. Þeir segja það beint út að einmitt sé þörf á því að halda við íslenska ákvæðinu og færa fyrir því margvísleg rök sem ég efast ekki um að ráðherrann þekki. Um það eru þrjár reglur og sú þriðja er að gert er ráð fyrir því að iðnaður sem er í alþjóðlegri samkeppni fái allar sínar heimildir án endurgjalds miðað við frammistöðu þeirra sem ná bestum árangri í álfunni í Evrópu. Þetta er einmitt gert til þess að við framleiðum á þeim svæðum þar sem það er hagkvæmast með tilliti til umhverfisins og þar sem miklar kröfur eru gerðar. Þeir segja hér, með leyfi forseta:
„Enginn vafi er á að orkufrekur iðnaður á Íslandi muni falla undir þessi ákvæði og þurfi því ekki að kaupa sínar heimildir á markaði nema að því leyti sem fyrirtæki hér á landi standi sig verr en þau sem fremst standa.“
Þarna er í rauninni, virðulegi forseti, verið að gera hærri gæðakröfu, að ef við stöndum okkur betur en aðrir verðum við verðlaunuð. En þessi umræða er komin langt fram á kvöldið og ég held að þetta sé orðið ágætt. Ég ítreka skilaboð mín til hæstv. ráðherra um að gera það sem ætti ekki að þurfa að segja ráðherranum, að gæta hagsmuna Íslands til hins ýtrasta í Kaupmannahöfn.