138. löggjafarþing — 22. fundur,  10. nóv. 2009.

hagsmunir Íslands í loftslagsmálum.

9. mál
[19:08]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gott að vita að menn ná að stilla saman strengi og ég hvet hæstv. umhverfisráðherra til að eiga fleiri fundi til að ná þeim árangri, vegna þess að það eru nokkur mál þarna suður með sjó sem við þyrftum að fara að klára í sameiningu á nokkrum fundum. Ég skal mæta með ráðherranum á fundi hvenær sem er ef ég get greitt fyrir þeim málum, en það var útúrdúr.

Ég er alveg sammála því að það þjónar engum hagsmunum að vera að hnútukastast eins og ég held að hæstv. ráðherra hafi orðað það. Við eigum og okkur ber einfaldlega skylda til þess að berjast fyrir íslenskum hagsmunum og ekki bara að setja þá fram og segja það kurteislega, við eigum að berjast fyrir íslenskum hagsmunum. Það er það sem ég vona að hæstv. ráðherra hafi nestað samninganefnd sína með, vegna þess að ég get upplýst hæstv. ráðherra um það að allar aðrar þjóðir eru að berjast fyrir hagsmunum sínum. Og ef það verður þannig að eitthvert fyrirtæki geti ekki byggt hvers konar orkufrekan iðnað sem til stendur að byggja hér vegna þess að losunarheimildir skortir eða það borgi sig ekki, þá get ég alveg upplýst hæstv. ráðherra um að það verður væntanlega ekki vandkvæðum bundið að byggja eins og eitt álver, eða eitthvað annað, í Kína þar sem notað er miklu minni umhverfisvænn orkugjafi, þá þurfum við aftur að líta til þess að við búum jú öll hér í einum heimi.

Allir eru að berjast fyrir sínu og við þurfum að standa klár á því að það er enginn sem mun berjast fyrir okkur nema við sjálf. Við þekkjum það af þeim ýmsu deilum sem við höfum átt hér að undanförnu að við þurfum sjálf að standa í lappirnar til þess að ná fram hagsmunum okkar.

En ég var reyndar mjög ánægð þegar ég las svör Íslands til Evrópusambandsins um daginn, vegna þess að þá sá ég að hæstv. umhverfisráðherra hafði ekki alveg gefið frá sér íslenska ákvæðið. Það kom nú reyndar fram aðeins í umræðunum áðan og ég hvet hæstv. ráðherra til að berjast fyrir því áfram.