hagsmunir Íslands í loftslagsmálum.
Virðulegi forseti. Auðvitað eiga Íslendingar að beita sér fyrir því að framleiðsla mengandi vöru dragist saman eins og ég held að við höfum alltaf gert. Það þýðir hins vegar ekki að við eigum að — (Gripið fram í.) ég meina, við erum að beita okkur fyrir því með því að framleiða vöru og annað með þessari hreinu orku sem við eigum. Við eigum ekki að fara í neinn feluleik með þetta.
Ég tek hins vegar undir það sem kom fram hjá hæstv. ráðherra, við þurfum að vanda okkur vel og skipuleggja framtíðina í því hvernig við drögum úr gróðurhúsalofttegundum og annarri mengun. Ísland er að mínu viti meðal fremstu þjóða í heimi, á að vera það áfram og við eigum að sjálfsögðu að vera fremst. Við eigum að taka af skarið ef við getum, en ég átta mig ekki alveg á því hvort þingmaðurinn er að kalla fram einhverja ákveðna skoðun sem ég hef ekki. Ef svo er (Gripið fram í.) fær hann það ekki fram.
Ég vil samt halda til haga að ég held að stjórnmálamenn fyrri ára, sem ekki sitja hér í dag, hafi flestir haft það að sjónarmiði að nýta þau tækifæri sem Ísland hefur til að styrkja atvinnu, byggð, búsetu og þjóðlífið allt án þess að fórna til þess náttúrunni og umhverfinu eins og mér finnst margir tala. Ég held að menn hafi gert það af góðum hug einum og það munum við sem sitjum á þingi vonandi gera áfram.