störf þingsins.
Frú forseti. Tilnefndan viðtalsþátt sá ég ekki og hef ekki heyrt þetta viðtal. Almennt um málið, eins og fram kom í umræðum áðan hjá hv. þm. Lilju Mósesdóttur, samþykktum við lög um daginn sem eru ekki bara viðurkenning á þeirri þörf sem er á almennri niðurfærslu á húsnæðislánum heldur rammi utan um það, verklagsreglur, og allt það sem til þarf í fjármálafyrirtækjunum til að ráðast í það risastóra verkefni. Hver þörfin að lokum er, hve mörg hundruð milljarðar eða tugir milljarða verða afskrifaðir að lokum í það heila af húsnæðislánunum á eftir að koma í ljós.
Um þetta talaði Samfylkingin í vor að ætti að gera á forsendum hvers einstaklings og fyrirtækis en ekki flatt yfir línuna. Um það tókumst við þá á. Nú erum við búin að setja lög á þinginu sem eru rammi utan um akkúrat þessa leið, sem eru bæði viðurkenning á almennri niðurfærslu húsnæðislána og rammi og verklagsreglur utan um það. Það var mín skoðun þá og er mín skoðun enn að þetta eigi að gera á forsendum hvers einstaklings og hvers fyrirtækis. Það getur verið um að ræða niðurfellingu upp á 10–20% hjá einum og það dugir til að færa til samræmis höfuðstól lána og verðmæti eigna, en það getur þurft afskriftir upp á 30–40% hjá öðrum einstaklingi til að færa til samræmis höfuðstól lána og verðmæti eigna. Það liggur fyrir að hver einasti húsnæðisskuldaeigandi getur í dag labbað inn í bankann sinn og sótt um skuldaaðlögun sem fer þannig fram að viðkomandi gerir þriggja ára samkomulag við bankann, greiðir eins og hann getur inn á lánin, heldur eftir því sem hann þarf til framfærslu og að þriggja ára samningstíma liðnum eru færð saman höfuðstóll lána og verðmæti eignar. Þetta er besta hugsanlega og færa leiðin.
Þessi leið var unnin af hæstv. félagsmálaráðherra og mörgum þingmönnum hér í salnum og öðrum á síðustu vikum og mánuðum, er orðin að lögum og þar með eru þessi mál í ágætum farvegi eins og stendur.