Náttúruminjasafn Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda þessa fyrirspurn og þá þörfu umræðu sem af henni hefur spunnist. Ég hjó eftir því hjá fyrirspyrjanda, hv. þm. Siv Friðleifsdóttur, að hún orðaði þetta þannig að svona safn ætti að vera á höfuðborgarsvæðinu. Gott og vel. (SF: Höfuðstöðvar.) Höfuðstöðvar já. Ég hef aldrei skilið þá umræðu til fulls. (Gripið fram í: Fyrir fólkið.) Fyrir fólkið, já, en það býr líka fólk annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu. (Gripið fram í.) Ég vil fá að klára. Ég held að nauðsynlegt sé að hugsa safnamálin í allt öðru umfangi en við höfum gert fram til þessa. Í ljósi þess sem hefur byggst upp úti um allt land held ég að menn ættu að einbeita sér að því núna meðan gefst tími til að hugsa þennan málaflokk algerlega frá grunni. Ekki endilega út frá húsum heldur því hvað við ætlum að vera með, hverjum við ætlum að þjóna, hvað við ætlum að sýna, hvað við ætlum að fá fram með þessu. Ég lít svo á að í þeim hremmingum (Forseti hringir.) sem efnahagslíf landsins er í nú sé tækifæri til að hugsa þennan málaflokk algerlega frá grunni.