138. löggjafarþing — 23. fundur,  11. nóv. 2009.

Vetraríþróttamiðstöð Íslands.

104. mál
[14:30]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S):

Virðulegi forseti. Í tilefni af umræðunni áðan jaðraði ræða hv. þingmanns við það að vera lýðskrum í samanburði á milli landsvæða — (Gripið fram í.) ég er nú að stríða henni örlítið í þessum efnum. Ég vil minna á að samstarf Akureyrarbæjar og menntamálaráðuneytisins fyrr á árum var mjög gott og sú uppbygging sem þar átti sér stað er til mikillar fyrirmyndar. En það sem eftir stendur er að þar er verkum ólokið og eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra er ekki enn kominn á samningur milli menntamálaráðuneytisins og Vetraríþróttamiðstöðvar um framhald verka.

Þó svo illa ári í fjármálum beini ég þeim tilmælum til hæstv. ráðherra að efna í þennan samning því að menn eiga á tímum sem þessum að horfa til lengri tíma og leggja þá bara betri grunn að því sem gert er. Ég vil því beina þeim tilmælum til hæstv. ráðherra að efna í þennan samning og óska eftir viðræðum við sveitarfélögin fyrir norðan því að samstarf sveitarfélaga á þessu sviði, milli Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar og Akureyrar, er komið á. Í því sambandi er rétt að minna á að Grímsey og Hrísey eru orðnar hluti af Akureyrarkaupstað.