lán og styrkir frá Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og þessa fyrirspurn. Varðandi tengsl þessa máls við efnahagsstöðu Íslands og fjármál fannst mér ekki neitt slíkt koma fram í máli hæstv. utanríkisráðherra. Það var helst að þess gætti í máli hv. fyrirspyrjanda sjálfs, hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur.
Ég hygg að hæstv. utanríkisráðherra hafi svarað þeim spurningum sem hér eru lagðar fram eins ítarlega og vel og hægt er. Það er ljóst að sumt í þessum atriðum liggur ekki ljóst fyrir, það mun skýrast í ferlinu sem fram undan er. Alþingi tók, eins og kunnugt er, ákvörðun um að sækja um aðild að Evrópusambandinu, en það eru skiptar skoðanir í samfélaginu og innan flestra stjórnmálaflokka og ekkert óeðlilegt við það.
Ég tel mikilvægt að við virðum þann vilja sem endurspeglaðist í samþykkt Alþingis og að eftir honum verði unnið. Það er gert. Vilji menn fá nánari umræðu og ítarlegri upplýsingar eigum við tækifæri til að kalla eftir slíku á vettvangi utanríkismálanefndar í samskiptum (Forseti hringir.) okkar við samninganefndina sem hefur verið skipuð og þau samskipti eru þegar hafin.