138. löggjafarþing — 23. fundur,  11. nóv. 2009.

staðgöngumæðrun.

63. mál
[18:42]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Álfheiður Ingadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem farið hefur fram og ég mun reyna að nota þann stutta tíma sem gefst til þess að svara þeim fyrirspurnum sem hafa komið fram til viðbótar.

Hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir spurði hvort ráðuneytið hefði hugmynd um þann fjölda sem farið hefur utan í því skyni að eignast barn með staðgöngumæðrun. Svar mitt er nei. Mér er ekki kunnugt um að þær upplýsingar liggi fyrir. Það kann vel að vera að ef stofnað verður hér félag eins og hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir nefndi að þær upplýsingar verði þar að finna.

Vegna fyrirspurnar um hvernig upplýst umræða fer fram vil ég segja að að mínu mati eru orð jú til alls fyrst. Ég held að mjög mikilvægt sé að kalla til sérfræðinga, áhugafólk og þá sem hafa reynslu af því að fara í gegnum þetta ferli eða óska eftir því að fara í það, að rödd þeirra megi heyrast á málþingi eða fundi sem þessum.

Hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir spurði hvað ég teldi að mundi vega þyngst þegar ákvörðun verður tekin. Ég hlýt að svara því að það hljóti að vera siðferðileg álitaefni. Lögfræðileg og læknisfræðileg álitaefni standa alltaf fyrir sínu, en þetta snýst fyrst og fremst um siðfræðileg álitaefni og stöðu og hagsmuni sérstaklega barnanna sem þarna um ræðir, foreldranna og staðgöngumæðra, eins og ég sagði áðan.

Ég vil ítreka að starfshópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu núna í desember. Það er ekki hugsað að hann muni skila af sér fyrr en að lokinni þessari ráðstefnu. Niðurstaðan var sú að halda hana ekki á jólaföstunni heldur í byrjun næsta árs til þess að það dytti ekki niður umræða.

Ég vil að lokum þakka aftur kærlega fyrir þessa umræðu og ég vænti þess að á nýju ári fari hún ekki aðeins (Forseti hringir.) fram í þingsölum heldur úti í samfélaginu.