umönnunarbætur.
Virðulegi forseti. Það liggur við að ég falli frá orðinu vegna þess að hv. þm. Ásmundur Einar Daðason stal punktinum frá mér, ef svo mætti segja. Ég ætlaði einmitt að benda hæstv. ráðherra á að þarna lægju þúsund milljónir sem búið er að skuldbinda í málaflokk sem ég held að sé mun minna mikilvægur en sá málaflokkur sem við erum að tala um núna. Ef það er einhver flokkur sem við 63 sem sitjum hér á hinu háa Alþingi ættum að geta náð sátt um, þótt við séum ekki sammála um allt, þá er það að hlífa fötluðum börnum við niðurskurði og gæta þess að sú mikilvæga þjónusta, hvort sem það heita umönnunarbætur eða annað, sem þau þarfnast verði sem allra best. Ég er alla vega tilbúin til að leggja mitt lóð á vogarskálarnar þar.
Ég ætlaði líka að nota tækifærið fyrst hæstv. ráðherra svarar nú fyrirspurnum (Forseti hringir.) um þennan málaflokk að spyrja hvers vegna fjárveitingar til svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra barna á Reykjanesi eru 24% (Forseti hringir.) lægri en til annarra landshluta.