sérstakt fjárframlag til sparisjóða.
Frú forseti. Ég held að orðaskylmingar hér séu ekki aðalatriði málsins heldur verkefnið sjálft. Það er stórt og mikilvægt og það skal enginn gera lítið úr því hversu afdrifaríkt það er og mikilvægt fyrir okkur að þessi heildarendurskipulagning fjármálakerfisins takist vel og við höfum þá í höndunum þegar upp er staðið — þó að það hafi tekið mikinn tíma, kostað mikla vinnu og óheyrilega fjármuni, það verður að horfast í augu við það. Það er ekki á hverjum degi sem eitt stykki bankakerfi hrynur í heilu landi. (GÞÞ: Það sögðum við í sumar.) Þar af leiðandi held ég að það hafi líka verið gott að lagagrundvöllurinn lá fyrir í sumar, það var mikilvægt, því fyrr var ekki hægt að fara að vinna endanlega frumvörp eða tillögur að fjárhagslegri endurskipulagningu einstakra fyrirtækja, ekki fyrr en lagaumhverfið var ljóst. Það var mikilvæg forsenda þess að hægt væri að halda vinnunni áfram síðsumars og í haust.
Ég legg bara áherslu á það, svona rétt til að rifja það upp, hvers eðlis þetta viðfangsefni er. Í fyrsta lagi er það þannig að sparisjóðirnir eru mjög innbyrðis tengdir og þeir eru einfaldlega háðir því, hvað varðar eiginfjárstöðu, hvernig leysist úr málum annarra aðila. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að myndin liggi fyrir í heild sinni þannig að fé skattborgaranna sé ekki sett í einhverri óvissu inn í endurfjármögnun stofnana, sem kannski dugar svo ekki til ef illa tekst til í öðrum tilvikum. Greiðslumiðlun sparisjóðanna er líka mikilvægur þáttur sem þarf að tryggja að sé í traustlega um búið þegar þessari endurskipulagningu lýkur. Landfræðileg endurskipulagning sparisjóða og möguleg sameining þeirra er til skoðunar samhliða þessu. Málefni nokkurra sparisjóða tengjast í gegnum Byggðastofnun og því hvernig mál þeirra sorterast þar og hvernig endurfjármögnun Byggðastofnunar reiðir af. Kröfurnar sem urðu til við fall Sparisjóðabankans teygja anga sína um allt þetta kerfi og þannig gæti ég haldið lengi áfram.
Þetta hefur, alveg eins og í tilviki stóru bankanna, reynst miklu flóknara og viðameira verkefni en menn ætluðu í byrjun. Nú viðurkenna það allir að fyrri hugmyndir og fyrstu hugmyndir um hversu (Forseti hringir.) hratt væri hægt að ljúka þessu verkefni voru algerlega óraunhæfar. Það horfast allir í augu við. Og margir segja, og þar á meðal t.d. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og erlendir sérfræðingar, að í reynd hafi verið unnið þrekvirki hér við það (Forseti hringir.) að komast þó þangað sem við erum komin með endurreisn fjármálakerfisins.