staða dreif- og fjarnáms.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að vekja athygli á mikilvægi dreif- og fjarnáms núna þegar við stöndum frammi fyrir miklum niðurskurði í ríkisútgjöldum. Á slíkum tímum er mikilvægt að forgangsraða útgjöldum og þá ekki síst til hagsbóta fyrir börn og unglinga, og ríkisstjórnin hefur leitast við að gera það þótt það hafi ekki tekist á öllum sviðum, m.a. vegna þess hversu umfangsmikill niðurskurðurinn þarf að vera.
Niðurskurðurinn á framhaldsskólastiginu kemur ekki síst fram í því að búið er að skera að stórum hluta niður fjarnámsmöguleika framhaldsskólanema. Þetta mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem geta ekki vinnu sinnar eða búsetu sinnar vegna stundað framhaldsskólanám frá 8 til 5 á daginn. Þetta þýðir jafnframt að við erum með þessum niðurskurði að draga úr sveigjanleika framhaldsskólanámsins á sama tíma og þeim sem stunda framhaldsskólanám er að fjölga. Þessi fjölgun mun þýða að inn í skólana kemur fjölbreyttari hópur námsmanna sem þarf að koma til móts við. Það er því mikilvægt að hæstv. ráðherra haldi áfram því góða starfi sem fram hefur farið innan ráðuneytisins við að finna leiðir til að efla dreif- og fjarnám, ekki síst á landsbyggðinni.