þjóðaratkvæðagreiðslur.
Frú forseti. Þetta hefur verið skemmtileg og fróðleg umræða í dag um þetta merkilega mál, frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur. Þeir sem hafa fylgst með þinginu á síðustu árum og missirum og jafnvel áratugum vita að þetta mál hefur margoft verið flutt og mikið verið rætt um það og mikið kallað eftir því. Í greinargerð með frumvarpinu er gerð ágæt grein fyrir því að í flestum eða öllum nágrannalöndunum eru til staðar almennar umgjarðir um tilhögun og framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna alveg burt séð frá tilefni þeirra. Ég hef alltaf haft heilmikla samúð með því sjónarmiði sem fram kemur í frumvarpi Hreyfingarinnar um að tiltekinn hluti landsmanna og tiltekinn hluti þingmanna, minni hluti, geti kallað mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég held að það sé mjög skynsamlegt, eins og hv. þm. Þór Saari nefndi áðan, að tiltaka ákveðin mál eða málaflokka sem eru undanþegin því, þannig að ekki væri verið að snúa einhverjum viðkvæmum málum upp í pólitískan sirkus á erfiðum tímum, alveg óháð því samfélagsástandi sem við erum stödd í núna. Bara almennt og til lengri tíma litið þykir mér það skynsamlegt. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málum sem snúa að lýðræðismálum, alveg frá því að ég hóf þátttöku í stjórnmálum og flutti nokkrum sinnum sem varaþingmaður á árunum 2000–2004 tillögu til þingsályktunar um milliliðalaust lýðræði, um breytingar á lýðræðisfyrirkomulaginu og ýmislegt í þá veru og hef alltaf fylgst vel með þessum málum.
Tengt þessum miklu lýðræðisumbótum sem nú loksins virðist vera lag á að koma til Alþingis, í fyrsta sinn í mörg ár og áratugi, þessi stórbrotnu lýðræðismál sem breyta að verulegu leyti þeim undirstöðum sem samfélagið hvílir á til hins betra. Ákveðin þáttaskil virðast vera í þessari umræðu, það virðist vera andrúm og pólitískur vilji þvert á flokka og miklu meiri vilji inni í flokkum, sem áður voru ég segi ekki andsnúnir eða áhugalitlir um lýðræðislegar umbætur, að ná fram ýmsum umbótum hvað varðar þjóðaratkvæðagreiðslur, að landið verði eitt kjördæmi, persónukjör og margt fleira. Þetta eru þau þrjú mál sem standa svolítið upp úr í umræðunni akkúrat núna og er það mjög vel.
Síðustu vikur hef ég unnið að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins þar sem lagt er til að landið verði gert að einu kjördæmi. Ég sendi drög að því máli á þingflokksformenn allra þingflokka á Alþingi núna í morgun og bað þá að kynna það þingflokkum sínum. Ég ætla að freista þess að ná þverpólitískri samstöðu um málið og fá þverpólitískan hóp þingmanna til að flytja það, svo það gæti komið hingað til þingsins og farið í ítarlega umræðu, hvort sem umfjöllun um það tekur hálft ár, eitt ár eða tvö ár, það breytir ekki öllu, bara að það fái ítarlega og vandaða meðferð og yrði að lögum fyrir næstu kosningar þannig að hægt væri að kjósa til Alþingis og kjósa aftur um málið eftir næstu kosningar, af því að um er að ræða breytingu á stjórnarskrá. Þetta mál er mikið grundvallarmál sem snýr að mannréttindum, að atkvæði allra Íslendinga verði jafngild og við reynum að sníða aðra vankanta af sem hafa alltaf verið rökin og ástæðurnar fyrir því að landinu er skipt upp í kjördæmi þar sem atkvæðavægi er misjafnt, þótt það hafi batnað mjög frá því sem var fyrir nokkrum áratugum þegar hrikalegt ójafnvægi var á milli hagsmuna landsbyggðar og dreifbýlis, þá verðum við að mæta því með öðrum hætti.
En að því máli sem við erum að ræða núna sem er frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur, mál sem er mikið fagnaðarefni, og ég tek undir orð þeirra sem hafa mælt á undan mér í dag að það markar svo sannarlega þáttaskil og miklar lýðræðisumbætur á mörgum sviðum í samfélaginu og er ágæt umgerð og rammi utan um tillöguna um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Og eins og hv. þm. Þór Saari nefndi áðan er kjarni slíkra mála, milliliðalaus lýðræðis og beins lýðræðis, sá að fólkið í landinu, minni hluti o.s.frv. geti veitt valdinu aðhald. Það er kjarni málsins burt séð frá, eins og ég segi, einstökum ágreiningsefnum sem uppi eru tímabundið o.s.frv. Þetta er gríðarlega mikilvægt og stórt mál og mikilvægt að það nái fram að ganga með sem bestum hætti. Ég tek undir fjöldamargt af því sem kemur fram í máli Hreyfingarinnar og var til umræðu áðan og vona að nefndin geri það sem lagt var til áðan af flutningsmanni, að málunum verði með einhverjum hætti slegið saman og þau verði rædd samhliða í nefndinni og unnið úr þeim og þau tekin inn í frumvarp hæstv. forsætisráðherra, sem til bóta horfir og samstaða næst um o.s.frv. Þeir hafa skoðað það vel í nefndinni hvernig er hægt að breyta lögunum eins og t.d. að tiltekinn hluti landsmanna og tiltekinn hluti þingmanna geti kallað mál til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Við höfum áður rætt um Lýðræðisstofuna sem mér finnst mjög skynsamleg hugmynd og kom til umræðu í sumar þegar við vorum að tala um Evrópusambandið. En kjarninn er sá að íslensk stjórnskipun byggist að sjálfsögðu á fulltrúalýðræðinu sem gerir ráð fyrir að kjörnum fulltrúum sé veitt umboð til að setja lög og taka mikilvægar ákvarðanir sem varða almannahag á hverjum tíma. En markmiðið með þjóðaratkvæðagreiðslum er að veita hinum almenna borgara stjórnarskrárvarinn rétt til þess að taka milliliðalaust þátt í ákvarðanatöku um lagasetningu eða tiltekin málefni eftir atvikum í stað þess að ákvarðanirnar séu alltaf og án undantekninga teknar af þjóðkjörnum fulltrúum eins og almennt á við um þar sem fulltrúalýðræði ríkir. Það er náttúrlega ekki verið að tala um að afnema eða skerða fulltrúalýðræði þannig séð. En það er verið að sníða því nýjan stakk og breyta því mjög til hins betra þar sem réttur og aðkoma hins almenna borgara er stjórnarskrárvarinn með mjög afdráttarlausum og undanbragðalausum hætti. Við göngum út frá því í stjórnarskrá okkar að fjórðungur atkvæðisbærra borgara, fimmtungur eða einhver annar hluti geti kallað mál í þjóðaratkvæði og umræðan fari upp úr þeim töluvert undarlegu hjólförum sem hún var í fyrir nokkrum árum og var oft kennt við tímabil í kringum fjölmiðlalögin fyrir fjórum og fimm árum. Þá var eins og mikil ósköp þyrftu að dynja yfir þjóðina ef svo færi að málið gengi til þjóðaratkvæðis, sem er alveg stórbrotin nálgun á máli af því að þjóðaratkvæðagreiðslur eiga ekki að vera hversdagslegar þannig að fólk hætti að kjósa, en þær eiga að vera sjálfsagðar.
Það er sem sagt sjálfsagður réttur að ef vilji er til þess hjá tilteknum hluta þjóðar eða þings að þegar kemur að gríðarlega stórum álitamálum þá verði þau kölluð til þjóðaratkvæðis og meðhöndlunar þar. Það fór eins og það fór á þeim tíma en kveikti svo sannarlega umræðu um þörfina á því að setja þessa almennu umgjörð um tillöguna og framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna sem er, að mér heyrist og sýnist, mjög ríkur vilji til á Alþingi Íslendinga í dag að verði að lögum þó að þingmenn hafi að sjálfsögðu skoðanir á ýmsum blæbrigðum, eins og við ræðum í dag með mjög málefnalegum og yfirveguðum hætti hvernig við getum gert ágætt frumvarp betra. Það verður örugglega betra og öðruvísi eftir vinnuna í nefndinni heldur en það er núna. Ég efast ekkert um það og fagnaði viðbrögðum hjá hæstv. forsætisráðherra áðan við fram komnum breytingartillögum um að það komi að sjálfsögðu til greina og að nefndin vinni úr því þannig að markmið þjóðaratkvæðagreiðslufrumvarpsins og þessara breytinga á löggjöf okkar gangi fram með ýtrasta hætti um þátttöku og almennan rétt borgaranna til milliliðalauss lýðræðis þegar það á sem best við. Við getum öll talið upp mál sem við teljum að hefðu átt að ganga til þjóðaratkvæðis, hvort sem það er Kárahnjúkavirkjun eða þessi stóru átakamál í samfélaginu á síðustu árum og áratugum, skattabreytingar, skattalækkanir og allt þetta sem hefur svo gagnger áhrif á samfélagsgerð okkar. Þó að það kosti að sjálfsögðu átök og tímabundnar fylkingamyndanir að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu þá náum við um leið að rífa málin upp úr hjólförum flokkastjórnmálanna. Þess vegna er mikilvægt eins og var líka rætt um hérna fyrr í dag að þessi mál fái sjálfstæða meðferð og atkvæðagreiðslu, þeim sé ekki dengt inn um leið og sveitarstjórnarkosningum eða alþingiskosningum af því að það er líka að mörgu leyti ósanngjarnt gagnvart þingkosningum eða sveitarstjórnarkosningum að skekkja fókus eða umræðu þannig að hún fari eftir viðhorfum stjórnmálamanna, frambjóðenda eða kjósenda til alls óskyldra mála.
Evrópusambandsmálið kemur alltaf upp einfaldlega af því að um það hefur alltaf verið samstaða að þegar samningur liggi fyrir verði hann lagður fyrir þjóðaratkvæði. Það var rætt um það líka að vera með tvöfalt þjóðaratkvæði, fyrst um hvort við ættum að sækja um og svo aftur um samninginn. Úr varð sú leið að við sóttumst eftir samþykki Alþingis og síðan mun samningurinn eftir einhver ár, hvort sem þau eru tvö eða þrjú, ég er ekki alveg viss um það, ganga til þjóðaratkvæðis og þá verður tekist á um málið, vonandi með þokkalega málefnalegum hætti, þvert á flokkslínur og það á að eiga við um þessi stóru mál sem ganga til þjóðaratkvæðis. Þess vegna fagna ég þessu máli hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnar og annarra alveg sérstaklega og hvet eindregið til þess í umræðunni að það sem lagt er til í frumvarpi Hreyfingarinnar verði skoðað alveg sérstaklega og við náum öflugri og breiðri pólitískri samstöðu um þessi stóru lýðræðisumbótamál, þjóðaratkvæðagreiðslur, að landið verði gert að einu kjördæmi og við göngum til slíkra kosninga þá í þar næstu kosningum. Og persónukjörið, svo ég nefni það rétt að lokum af því að við höfum verið að ræða um það undir dagskrárliðnum Störf þingsins í því afar knappa formi, það tengist þessu af því að það er eitt þeirra lýðræðisumbótamála sem er nauðsynlegt og mikilvægt að gangi í gegnum þingið í ákveðinni samfellu.
Það er gott fyrir umræðuna hérna að þessi mál komi fram hvert af öðru, nefndirnar séu að vinna við þau í ákveðinni röð án þess að þau séu keyrð í gegnum þingið af því að við höfum ágætistíma núna í upphafi kjörtímabilsins til að vinna vel og vandlega að málunum. Einhverjir létu sig sjálfsagt dreyma um að persónukjörsmálið yrði að lögum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Nú veit ég ekki hvernig því gengur í nefnd og þingi en alveg burt séð frá því er það gífurlega mikilvæg löggjöf og það er eitt af þessum þremur til fjórum lýðræðismálum sem ég hef haft mikinn áhuga á í mörg ár og tel að sé mjög mikilvægt að gangi hér fram og ég hef alltaf verið mjög hrifinn af þessari leið sem ég held að Vilmundur Gylfason hafi fyrstur komið formlega fram með í íslenskum stjórnmálum að það verði viðhaft persónukjör þar sem að fólk gæti valið frambjóðendur þvert á framboðslista. Það er raunverulegt persónukjör sem kveður að, þannig að það sé ekki bara verið að færa prófkjör flokkanna eða forval eða hvernig sem menn orða það inn í kjörklefann, þannig að frambjóðendur úr einum flokki, á milli þeirra sé valið af óröðuðum lista á kjördag. Það er ekki nógu róttæk breyting að mínu mati af því að þá erum við í rauninni að stíga með einhverjum hætti það skref þótt það sé jákvætt í sjálfu sér. Og það er betra heldur en fyrirkomulagið í dag að gera það svoleiðis en það er enn þá betra að ganga alla leið og gefa fólki kost á því að velja þvert á lista. Svo að sjálfsögðu kýs fólk einn lista að lokum og veitir honum sitt atkvæði til þingkosninganna en fær leyfi til að hafa áhrif á frambjóðendur annarra flokka.
Ég held að íslenskir kjósendur séu að mörgu leyti komnir býsna langt fram úr, margir hverjir, flokkakerfinu sem slíku en þó að það spegli ágætlega sjónarmið og grundvallarafstöðu til stórra mála, frjálshyggju-, félagshyggju-, og lýðræðismála og annað þá er mikill og ríkur vilji til þess hjá kjósendum í dag eftir að hafa búið við þetta flokkafyrirkomulag meira og minna frá 1916 og 1929 þegar Sjálfstæðisflokkur verður til o.s.frv., að við stígum ákveðin skref út úr því kerfi með fullri virðingu fyrir því. Flokkarnir verða til eða flokkar í einhverri mynd áfram sem tækju utan um hugmyndir, hugsjónir og baráttumál en þessi róttæka breyting á persónukjörinu held ég að verði mjög jákvæð.
Ég heyri að ríkur vilji er til þess að frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslu verði að lögum. Nefndin mun fjalla um það á næstu vikum og mánuðum og ég lýsi jafnframt yfir ánægju minni með að það sé komið fram.